Fotbolti.net
31.08.04 - 22:58

Dwight Yorke til Birmingham (Staðfest)

Dwight Yorke í góðum málum

Dwight Yorke í góðum málum

Canon
Framherjinn Dwight Yorke er öllum að óvörum genginn til liðs við Birmingham. Hann var í allan dag í Skotlandi að ræða samninga við Celtic þar sem honum var víst boðinn eins árs samningur.
En síðan hafði Birmingham samband við kappann og buðu honum tveggja ára samning og því gat Yorke ekki neitað. Yorke gerði garðinn frægan með Manchester United en fór síðan til Blackburn.

Þar fann hann sig ekki alveg sem skildi og lenti að lokum upp á kant við Graeme Souness stjóra liðsins. Ekki hefur kaupverðið fengist gefið upp en það er líkega ekki ýkja hátt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.