31.08.26 - 12:24
Elvar Geir Magnússon
Allan til Man City (Staðfest)

Allan Elias.

Mynd: Man City

Mynd: EPA

Allan Elias.

Mynd: Man City
Manchester City hefur samið við kantmanninn Allan Elias sem er keyptur frá Palmeiras fyrir allt að 34,2 milljónir punda.
City hefur greitt upphaflega 32 milljónir punda, upphæð sem gæti svo hækkað eftir ákvæðum, fyrir 22 ára gamla Brasilíumanninn, sem hefur skrifað undir fimm ára samning.
Allan kemur beint í staðinn fyrir landa sinn Savio (Savinho), sem gekk til liðs við Tottenham Hotspur fyrir 75 milljónir punda í síðustu viku.
Hægri kantmaðurinn skoraði níu mörk og lagði upp tólf í 96 leikjum í öllum keppnum fyrir brasilíska efstu deildarliðið Palmeiras eftir að hafa komið í gegnum unglingadeild félagsins.

„Þetta er óraunveruleg stund fyrir mig. Manchester City, með allt sem þeir hafa unnið síðustu fimmtán árin, er eitt mesta aðdráttarafl heims í fótboltanum,“ segir Allan.
„Að geta setið hér í dag og sagt að ég hafi gengið til liðs við þá er stoltasta stund lífs míns. Ég elska Palmeiras og mun alltaf gera það - en ákvörðunin um að koma til City var auðveld.“
City hefur eytt yfir 230 milljónum punda í sumar, Elliot Anderson kom frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda og Ayyoub Bouaddi kom fyrir 85,6 milljónir punda frá Lille.
City er í viðræðum við Liverpool um kaup á hollenska framherjanum Cody Gakpo og hefur áhuga á að fá miðjumanninn Enzo Fernandez frá Chelsea.

Manchester loves a fighter. pic.twitter.com/jMN5zNKfrd
— Manchester City (@ManCity) August 31, 2026

Mynd: EPA