Fotbolti.net
31.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Benzema gæti lagt skóna á hilluna

Benzema gæti lagt skóna á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Franski framherjinn gæti lagt skóna á hilluna en hann hefur yfirgefið sádi arabíska félagið Al Hilal.
Þessi 38 ára gamli leikmaður lauk farsælum ferli hjá Real Madrid árið 2023 og gekk til liðs við Al Ittihad. Hann færði sig um set í sádi arabíu í janúar og gekk til liðs við Al Hilal.

Fabrizio Romano greinir frá því að hann hafi rift samningi sínum við félagið og er að skoða möguleikana sína. Hann verður annað hvort áfram í Sádi-Arabíu en þá kemur einnig til greina að leggja skóna á hilluna.

Darwin Nunez yfirgaf Al Hilal eftir komu Benzema þar sem það er útlendingakvóti í deildinni. Koma Ollie Watkins til félagsins gæti verið ástæða brotthvarfs Benzema.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.