Fotbolti.net
31.08.26 - 12:41
Elvar Geir Magnússon

Daniel Munoz til Forest (Staðfest)

Daniel Munoz er mættur í Skírisskóg.

Daniel Munoz er mættur í Skírisskóg.

Canon

Mynd: Nottingham Forest

Nottingham Forest hefur gengið frá 22 milljóna punda kaupum á kólumbíska hægri bakverðinum Daniel Munoz frá Crystal Palace.

Hann spilaði undir stjórn Oliver Glasner stjóra Forest hjá Palace þar sem þeir unnu saman FA-bikarinn og Sambandsdeildina.

Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning eftir að hafa spilað síðustu tvö og hálft ár á Selhurst Park og skorað 11 mörk í 109 leikjum. Munoz gæti spilað sinn fyrsta leik með Forest gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

„Forest er lið með frábæra leikmenn, mikla eiginleika og mikla möguleika. Það eru stór markmið fyrir framtíðina," segir Munoz sem á 51 landsleik að baki.

Forest gerði 2-2 jafntefli gegn Liverpool á laugardaginn, eftir að hafa tapað í fyrstu umferð.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.