31.08.26 - 10:45
Elvar Geir Magnússon
Edvin Austbö til West Ham (Staðfest) - Frábært fyrir Amin Cosic

Mynd: West Ham

Mynd: West Ham
West Ham hefur staðfest kaup á kantmanninum Edvin Austbö frá norska liðinu Viking fyrir óuppgefið verð.
Þessi norski U21-landsliðsmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Hamrana með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Nils Koppen, yfirmaður leikmannakaupa hjá West Ham segir: „Edvin er leikmaður sem við höfum fylgst náið með í nokkurn tíma og við erum mjög ánægð með að fá hann til West Ham United. Hann hefur sýnt mjög góðar framfarir og öðlast mikla reynslu í Noregi, og mikill áhugi hefur verið á honum víðs vegar um Evrópu. Við teljum að hann búi yfir þeim eiginleikum, styrkleikum og þeirri mögulegu getu sem þarf til að ná árangri í enska boltanum. Hann er fljótur, kraftmikill og skynsamur leikmaður."
Austbö er 21 árs og hefur skorað 15 mörk í 71 leik fyrir Viking síðan hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2022. Hann var valinn besti ungi leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta ári. Austbo er í U21 árs landsliði Noregs en hefur alls leikið 34 leiki og skorað eitt mark fyrir yngri landslið þjóðarinnar.
West Ham leikur í ensku B-deildinni eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í vor.
Þetta ættu að vera frábærar fréttir fyrir Amin Cosic, sem gekk til liðs við Viking frá KR í sumar, en hann leikur í sömu stöðu og Austbö á vinstri vængnum.

A Viking has landed ???????? pic.twitter.com/neIc0zDimJ
— West Ham United (@WestHam) August 31, 2026