Fotbolti.net
31.08.26 - 13:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fabregas vill fá Sanchez frá Chelsea

Fabregas vill fá Sanchez frá Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Cesc Fabregas, stjóri Como á Ítalíu, vill fá Robert Sanchez til ítalska félagsins.

Sanchez var aðalmarkvörður Chelsea þar til Emiliano Martínez var keyptur frá Aston Villa í gær og fór Martínez beint í markið eftir komuna. Sanchez var ekki á bekknum gegn Brighton i gær því Mike Penders var varamarkvörður Chelsea í leiknum.

Sanchez kom til Chelsea frá Brighton 2023 og hefur spilað 112 leiki í öllum keppnum fyrir félagið.
Hann er 29 ára Spánverji sem gæti mögulega farið á láni til Ítalíu en ekki er útilokað að hann verði keyptur.

Frakkinn Jean Butez er aðalmarkvörður Como.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.