Fotbolti.net
31.08.26 - 23:28
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Fær gamla fyrirliðann með sér í höfuðborgina (Staðfest)

Fær gamla fyrirliðann með sér í höfuðborgina (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Þjálfarinn mikilsvirti Gian Piero Gasperini gerði góða hluti á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn hjá AS Roma og hefur félagið unnið hörðum höndum við að styrkja leikmannahópinn í sumar.
Gasperini vildi fá nokkra leikmenn til sín og var að krækja í gamla fyrirliðann sinn úr röðum Atalanta, Hollendinginn Marten de Roon.

De Roon er 35 ára gamall og gerir tveggja ára samning við Roma þrátt fyrir hækkandi aldur. Hann er varnartengiliður að upplagi en getur einnig spilað sem miðjumaður og í hjarta varnarinnar.

Roma borgar eina milljón til að kaupa fyrirliðann þaulreynda úr röðum Atalanta eftir níu ára dvöl þar. De Roon og Gasperini störfuðu því saman hjá félaginu í átta ár og reyndist hollenski miðjumaðurinn ómissandi partur af byrjunarliðinu. Hann spilaði 408 leiki á dvöl sinni í Bergamó.

De Roon er sjöundi leikmaðurinn sem Rómverjar fá til sín á annríku sumri. Santiago Castro, Rodrigo Mora, Konstantinos Koulierakis, Nahuel Molina og Leonardo Balerdi eru einnig komnir til höfuðborgarinnar ásamt markavélinni Donyell Malen.

Argentínski landsliðsmaðurinn Balerdi kemur á láni frá Marseille með árangurstengdri kaupskyldu. Roma greiðir eina milljón fyrir lánið og getur keypt varnarmanninn fyrir um 15 milljónir til viðbótar. Kaupskyldan virkjast ef Balerdi kemur við sögu í 15 leikjum og Roma nær Evrópusæti.

De Roon á 44 landsleiki að baki fyrir Holland og var með í hópnum sem fór á HM í sumar.

Fær gamla fyrirliðann með sér í höfuðborgina (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.