Fotbolti.net
31.08.26 - 11:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fimm á förum frá Spurs

Richarlison er einn af fimm sem eru á förum frá Tottenham.

Richarlison er einn af fimm sem eru á förum frá Tottenham.

Canon

Mynd: EPA

Fimm leikmenn eru mjög líklega að yfirgefa Tottenham Hotspur fyrir gluggalok annað kvöld.

Það eru þeir Richarlison, Kevin Danso, Pape Matar Sarr, Mikey Moore og Souza.

Sóknarmaðurinn Richarlison er á leið til Everton og á móti fer Iliman Ndiaye til Tottenham. Ekki er um formleg leikmannaskipti að ræða.
Það er áhugi á varnarmanninnum Danso frá Sunderland og Sarr er að fara til Juventus á láni með kaupmöguleika.

Vængmaðurinn Mikey Moore er á leið á láni til Köln þar sem hann verður liðsfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar. Enginn kaupmöguleiki er hluti af þeim lánssamningi.

Vinstri bakvörðurinn Souza fer þá á láni til Porto.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.