31.08.26 - 17:36
Ívan Guðjón Baldursson
Hutchinson til Milan - Vilja Murphy í staðinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
AC Milan hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn umtalsvert í sumar og er að krækja í kantmanninn knáa Omari Hutchinson úr röðum Nottingham Forest.
Hutchinson fer til Milan á lánssamningi með árangurstengdri kaupskyldu. Hann er staddur í Mílanó þessa stundina þar sem hann gengst undir læknisskoðun og skrifar undir samning.
Hann verður sjötti leikmaðurinn sem Rúben Amorim fær til liðs við sig eftir að hann tók við Milan í sumar og er vonast til að hann geti hjálpað við að fylla í skarðið sem Rafael Leao skilur eftir.
Milan borgar um 4 milljónir evra til að fá Hutchinson á láni og getur keypt hann fyrir tæpar 45 milljónir til viðbótar, sem er svipuð upphæð og Nottingham Forest greiddi til að kaupa hann frá Ipswich Town í fyrrasumar.
Hutchinson er 22 ára gamall og skoraði 3 mörk í 10 leikjum með U21 landsliði Englands. Á síðustu leiktíð gaf hann 7 stoðsendingar í 31 úrvalsdeildarleik með Forest.
Forest er að skoða kantmanninn Jacob Murphy til að fylla í skarðið. Murphy er 31 árs gamall og kom með beinum hætti að 9 mörkum í 46 leikjum sem varaskeifa í liði Newcastle á síðustu leiktíð.