Fotbolti.net
31.08.26 - 18:28
Ívan Guðjón Baldursson

Mudryk spenntur að spila aftur undir stjórn De Zerbi

Mudryk spenntur að spila aftur undir stjórn De Zerbi
Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur er að reyna að sækja tvo leikmenn til nágranna sinna í Chelsea undir lok sumargluggans.
Chelsea hafnar tilboði Leeds í Mudryk
TENGT EFNI

Chelsea hafnar tilboði Leeds í Mudryk

Úkraínski kantmaðurinn Mykhaylo Mudryk vill ólmur fara til Tottenham á lánssamningi sem gildir út tímabilið. Hann er afar spenntur fyrir að starfa aftur með Roberto De Zerbi sem þjálfaði hann hjá Shakhtar Donetsk tímabilið 2021-22, áður en Ítalinn var ráðinn til Brighton.

Ekki er greint frá því hvort það fylgi kaupmöguleiki með lánssamningnum, en Tottenham er einnig að reyna að kaupa varnarmanninn Tosin Adarabioyo úr röðum Chelsea.

Tosin er 28 ára gamall og aðeins með tvö ár eftir af samningi og hefur verið orðaður við ýmis úrvalsdeildarfélög undanfarnar vikur, þar á meðal Aston Villa og Manchester United.

Talið er að Chelsea vilji fá 20 milljónir punda til að selja Tosin. Þá vill félagið láta kaupskyldu fylgja með lánssamningnum fyrir Mudryk, á meðan Tottenham vill frekar kaupmöguleika eða árangurstengda kaupskyldu.

Tottenham tosar í Tosin
TENGT EFNI

Tottenham tosar í Tosin

Mudryk spenntur að spila aftur undir stjórn De Zerbi
Canon

Mynd: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.