Fotbolti.net
31.08.26 - 11:01
Elvar Geir Magnússon

Sheff Utd kaupir Choudhury (Staðfest)

Hinn hárprúði Hamza Choudhury.

Hinn hárprúði Hamza Choudhury.

Canon

Mynd: EPA

Sheffield United sem er í ensku Championship-deildinni hefur keypt Hamza Choudhury frá Leicester fyrir óuppgefið verð.

Þessi 28 ára gamli leikmaður lék með Sheffield á láni seinni hluta síðasta tímabils en hefur nú gengið til liðs við félagið endanlega á eins árs samningi.
Talið var að þessi landsliðsmaður Bangladess hafi verið á leið til Derby eftir að félögin höfðu komist að samkomulagi.

Sheffield United kom svo skyndilega með tilboð sem varð til þess að Choudhury kaus að snúa aftur til félagsins.

Choudhury gekk til liðs við Leicester sem sjö ára gamall drengur en yfirgefur það nú, 21 ári seinna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.