31.08.26 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Zetterer til Leeds (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Leeds United er búið að festa kaup á þýska markverðinum Michael Zetterer sem gerir þriggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið.

TENGT EFNI
Markvörður Frankfurt á leið til Leeds - Perri til Torino
Leeds borgar 5 milljónir evra og verður Zetterer varamarkvörður fyrir James Trafford sem kostaði um tíu sinnum meira þegar hann var keyptur úr röðum Manchester City í sumar.
Zetterer er 31 árs gamall og kemur úr röðum Eintracht Frankfurt. Hann lék 28 leiki fyrir Frankfurt á síðustu leiktíð og var aðalmarkvörður Werder Bremen þar á undan.
Markvörðurinn á fimm leiki að baki fyrir yngri landslið Þýskalands og getur búist við að verja mark Leeds í bikarleikjum á tímabilinu.
Hann tekur stöðu Lucas Perri í hópnum hjá Leeds eftir að Brassinn skipti yfir til Torino.
Zetterer er fimmti leikmaðurinn sem Leeds fær í sumar eftir Trafford, Tarik Muharemovic, Nico Elvedi og Harry Wilson.

???? The Zet has landed! pic.twitter.com/HgqMbBdGEa
— Leeds United (@LUFC) August 29, 2026

Mynd: EPA