31.10.26 - 14:58
Brynjar Ingi Erluson
Töpuðu mikilvægum stigum

Álasund tapaði mikilvægum stigum

Mynd: Heimasíða Álasunds

Álasund tapaði mikilvægum stigum

Mynd: Heimasíða Álasunds

Það var nóg um að vera hjá íslenskum atvinnukonum í fótboltanum í dag, en þær voru í eldlínunni víðs vegar um Evrópu.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom inn af bekknum í 2-1 sigri FCK á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni.
FCK er í næstneðsta sæti deildarinnar með níu stig, en Nordsjælland er í öðru sæti með 25 stig.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í byrjunarliði Leipzig sem tapaði 1-0 fyrir Köln í 16-liða úrslitum þýska bikarsins. Sandra María Jessen og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru ekki í leikmannahópi Kölnar.
Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn af bekknum hjá Eskilstuna sem marði 1-0 sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni. Eskilstuna er í sjötta sæti með 33 stig.
Freyja Stefánsdóttir og María Catharina Gros Ólafsdóttir voru báðar í byrjunarliði Djurgården sem vann 2-0 sigur á Vittsjö. Djurgården er í níunda sæti með 30 stig.
Eyrún Embla Hjartardóttir var í liði varaliðs Häcken sem tapaði 4-1 fyrir Gautaborg í sænsku B-deildinni. Varaliðið situr á botninum með aðeins átta stig eftir 24 leiki.
Daníela Dögg Guðnadóttir var í liði Álasunds sem tapaði óvænt 1-0 fyrir Stabæk í norsku úrvalsdeildinni. Tapið er mikið áfall fyrir Álasund í titilbaráttunni, en liðið er í öðru sæti, einu stigi á eftir toppliði Brann sem á nú möguleika á að ná fjögurra stiga forskoti.