Fotbolti.net
31.10.26 - 15:22
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Arnar Grétars enn í myndinni hjá Breiðabliki

Arnar fundar með Breiðabliki um helgina.

Arnar fundar með Breiðabliki um helgina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik er í þjálfaraleit eins og mikið hefur verið fjallað um. Arnar Grétarsson er greinilega enn inni í myndinni hjá Kópavogsfélaginu og mun hann fara á fund um helgina.

Greint var frá þessu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Enn er talið að Jökull Elísabetarson sé líklegastur til að taka við starfinu en Kópavogsfélagið er enn að velta steinum.
Vandamálin sem nýr þjálfari Breiðabliks þarf að leysa
TENGT EFNI

Vandamálin sem nýr þjálfari Breiðabliks þarf að leysa

Afturelding gaf Breiðabliki neitun en þeir grænu vildu fá Magnús Má Einarsson, þjálfara liðsins.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, er þá einnig orðaður við Breiðablik og í útvarpsþættinum telja menn ekki ólíklegt að Blikar vilji einnig ræða við hann um helgina áður en ákvörðun verður tekin.

Líklegt er að nýr þjálfari Breiðabliks verði tilkynntur fljótlega eftir helgina.
Jökull er talinn líklegastur sem næsti þjálfari Blika.

Jökull er talinn líklegastur sem næsti þjálfari Blika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.