31.10.26 - 14:49
Brynjar Ingi Erluson
Jón Dagur með stoðsendingu í öruggum sigri

Jón Dagur lagði upp í sigri Herthu

Mynd: Hertha BSC

Jón Dagur lagði upp í sigri Herthu

Mynd: Hertha BSC
Jón Dagur Þorsteinsson heldur áfram að gera það gott með Herthu Berlín í Þýskalandi en hann var með stoðsendingu í 3-0 sigri liðsins á Kaiserslautern í B-deildinni í dag.
Íslenski landsliðsmaðurinn er fastamaður hjá Herthu og hefur verið mikilvægur hlekkur í frábærri byrjun liðsins á tímabilinu.
Hann lagði upp fyrra markið í sigrinum á Kaiserslautern í dag, en Hertha hefur nú unnið níu af fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni.
Jón Dagur hefur skorað þrjú mörk og lagt upp önnur tvö í deildinni, en Hertha trónir á toppnum með 28 stig.
Lúkas Petersson var í marki varaliðs Hoffenheim sem tapaði 1-0 fyrir Viktoria Köln í þýsku C-deildinni. Hoffenheim er í níunda sæti með 16 stig.
Daníel Ingi Jóhannesson var í byrjunarliði Kolding sem vann 3-2 sigur á Köge í dönsku B-deildinni. Kolding er í sjötta sæti með 15 stig.
Adam Ingi Benediktsson stóð á milli stanganna hjá AB sem tapaði 3-1 fyrir Fredericia. AB er í fjórða sæti deildarinnar með 18 stig.