31.10.26 - 10:12
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd horfir til Barcelona - Arsenal ætlar að bjóða í einn heitasta framherja Evrópu

Fermin Lopez er orðaður við Man Utd

Mynd: EPA

Arsenal ætlar að fá Nicolo Tresoldi

Mynd: EPA

Bassey til Man Utd?

Mynd: EPA

Fermin Lopez er orðaður við Man Utd

Mynd: EPA

Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins og að þessu sinni er af nógu að taka.
Manchester United hefur áhuga á Fermin Lopez (23), miðjumanni Barcelona á Spáni, en félagið vill styrkja leikmannahópinn í janúarglugganum. (Mail)
Lisandro Martínez (28), varnarmaður United, mun yfirgefa félagið eftir tímabilið. Barcelona og Atlético Madríd hafa bæði áhuga á argentínska landsliðsmanninum. (AS)
Arsenal er reiðubúið að greiða 42 milljónir punda fyrir Nicolo Tresoldi (22), framherja Club Brugge í Belgíu, en verðmiðinn gæti hækkað eftir tímabilið. (Football Insider)
Fjölmörg félög í ensku úrvalsdeildinni fylgjast með Kelvin Yeboah (26), framherja Minnesota United í MLS-deildinni í Bandaríkjunum, en Everton er sagt standa best að vígi í baráttunni um hann. (Talksport)
Áhugi Man Utd á Calvin Bassey (26), varnarmanni Fulham og nígeríska landsliðsins, fer sífellt vaxandi. (Teamtalk)
Barcelona gæti gert aðra tilraun til að fá Alessandro Bastoni (27), varnarmann Inter á Ítalíu, eftir að hafa misst af honum í sumar. (Mundo Deportivo)
Leeds hefur áhuga á Issouf Sissokho (24), miðjumanni Maccabi Tel Aviv í Ísrael. (Football Insider)
Man Utd ætlar sér að styrkja hópinn með vinstri bakverði og framherja í janúarglugganum. (Times)
Crystal Palace mun mæta harðri samkeppni frá ítölskum félögum um Tiago Gabriel (21), varnarmann Lecce. (Teamtalk)
Omari Hutchinson (23), vængmaður Nottingham Forest, mun snúa aftur til Forest frá AC Milan næsta sumar, en ítalska félagið ætlar að fá Endrick (20) frá Real Madrid í hans stað. (Gazzetta)