31.12.04 - 07:55
Magnús Már Einarsson
Kuqi til Birmingham (Staðfest)




Birmingham hefur loks klárað kaupinn á finnska sóknarmanninum Njazi Kuqi en þessi leikmaður er yngri bróðir Shefki Kuqi sóknarmanns Ipswich. Njazi Kuqi sem er 21 árs kemur frá FC Lahti í heimalandinu en Birmingham borgar um 400 þúsund pund fyrir hann.
Kuqi sem verður í treyju númer 14 hjá Birmingham var til reynslu hjá félaginu í tíu daga í nóvember og náði hann að heilla Steve Bruce stjóra liðsins en hann hefur verið að leita að framherja þar sem að Mikael Forssell er frá út tímabilið vegna meiðsla.
