„Leikirnir verða oft hægir hérna í Egilshöllinni og það kom okkur ekki á óvart. Við nutum þess að hlaupa í 90 mínútur og langflestir eru sprungnir á því," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir 1-0 sigurinn á Fram í Lengjubikarnum í dag.
ÍBV er búið að semja við miðjumanninn Priestley Griffiths sem var á reynslu á dögunum og þá er félagið að fá leikmann að nafni Henry Rollinson á reynslu í næstu viku.
„Við erum að skoða að bæta við einum til tveimur mönnum í viðbót. Við þurfum að styrkja hópinn. Það er örlítið meira leikjaálag (vegna Evrópudeildarinnar) og við þurfum að þétta raðirnar," sagði Kristján.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir