Enski U21-landsliðsmaðurinn Harry Kane átti fínan leik með Tottenham og skoraði eitt af mörkum liðsins í 5-1 sigri gegn Sunderland í gær.
Hann varð fyrir höfuðmeiðslum í leiknum og þurfti aðhlynningu.
Hann varð fyrir höfuðmeiðslum í leiknum og þurfti aðhlynningu.
Sjúkrateymi Tottenham var harðlega gagnrýnt fyrr á leiktíðinni fyrir að leyfa Hugo Lloris markverði að halda áfram leik eftir að Frakkinn vankaðist eftir höfuðhögg.
Læknir Tottenham lagði einfalda spurningu fyrir Kane til að athuga hvort það væru ekki „öll ljós kveikt" eftir höggið.
„Hverjir eru á toppnum í deildinni?" spurði læknirinn og þegar Kane svaraði Liverpool fékk hann grænt ljós á að halda leik áfram.
Athugasemdir