Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   mán 12. janúar 2015 09:30
Alexander Freyr Tamimi
Van Gaal við blaðamann: Þú hefur beðið eftir þessu
Louis van Gaal var ósáttur með einn tiltekinn blaðamann.
Louis van Gaal var ósáttur með einn tiltekinn blaðamann.
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, var skiljanlega ekkert allt of kátur á blaðamannafundi eftir 1-0 tap sinna manna gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Hollendingurinn, sem hefur oft átt í stormasömu sambandi við fjölmiðlamenn í gegnum tíðina, var lítið hrifinn þegar einn blaðamaður benti honum stigafjöldi United nú væri sá sami og hann var undir stjórn David Moyes eftir jafn marga leiki á síðasta tímabili.

Moyes var harðlega gagnrýndur af flestum stuðningsmönnum á síðustu leiktíð en Van Gaal virðist njóta talsvert meira trausts, þrátt fyrir að árangurinn hafi ekki verið miklu betri. Honum var þó lítt skemmt yfir ummælum blaðamannsins.

,,Já. Þú hefur beðið eftir þessu augnabliki svo þú getir spurt mig að þessu? Augnablikinu þar sem ég er með jafn mörg stig og David Moyes? Allt í lagi," sagði Van Gaal pirraður.

,,Við verðum að gera betur, við verðum að bæta okkur og þess vegna leggjum við hart að okkur. Ég var búinn að segja það áður að við stýrðum leiknum algerlega, en við verðum að skapa meira."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner