Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 15. október 2014 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Mirror 
Özil á forsíðum vegna framhjáhaldsmáls
Mesut Özil.
Mesut Özil.
Mynd: Getty Images
Christian Lell, fyrrverandi varnarmaður FC Bayern, segir stórstjörnuna Mesut Özil hafa sofið hjá fyrrverandi kærustu sinni á meðan þau voru enn saman.

Özil var á þeim tíma í sambandi, en Lell hefur opinberað samskipti Özil við Melanie Rickinger sem áttu sér stað í forritinu WhatsApp. Í þeim sést Özil daðra við Rickinger, en á þeim tíma voru þau bæði í samböndum.

Lell birti samskiptin á Facebook-síðu sinni sem nú hefur verið lokað.

Özil, sem leikur með Arsenal og er dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins, hefur hingað til neitað að tjá sig um ásakanirnar.

Hefur Özil verið í sambandi með Mandy Capristo frá því á síðasta ári. Eftir ásaknirnar eyddi hún út öllum myndum af Özil af Facebook og Instagram-aðgangi sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner