Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 16. apríl 2013 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Vucinic svarar fyrir sig: Ósönn gagnrýni
Mynd: Getty Images
Mirko Vucinic hefur verið gagnrýndur af ýmsum aðilum innan ítalska fjölmiðlaheimsins fyrir að vera of latur og ekki nægilega vinnusamur.

Vucinic segist geta tekið gagnrýni, en ef gagnrýnin reynist ósönn þá geti hann ekki setið kyrr án þess að svara fyrir sig.

,,Við hlaupum eins og brjálæðingar í Juventus, en þetta fólk getur ekki séð það," sagði Vucinic.

,,Þeir sögðu að ég væri ekki nógu vinnusamur, en tölurnar úr Bayern leiknum sýna að það er ekki satt.

,,Ég tek gagnrýni, en ég get ekki tekið gagnrýni þegar hún er ósönn."

Athugasemdir
banner
banner
banner