Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig Laugardalsvöllur gæti litið út eftir einhver ár samkvæmt hugmyndum KSÍ að nýjum og endurbættum velli.
Þjóðarleikvangur okkar yrði þá hringbyggður og tæki um 15 þúsund manns í sæti.
Þjóðarleikvangur okkar yrði þá hringbyggður og tæki um 15 þúsund manns í sæti.
Hlaupabrautin verður látin víkja en völlurinn verður gerður upphitaður. Þegar liggur fyrir styrkur frá UEFA vegna þess verkefnis.
„Við viljum að byrjað verði á þessu að ári, þegar Smáþjóðaleikunum er lokið og undankeppni EM,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, við Morgunblaðið en ljóst er að aðkomu áhugasamra fjárfesta er þörf.
Athugasemdir