Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 17. september 2017 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Coutinho talar loksins - „Fékk starfstilboð sem ég hafði áhuga á"
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho hefur talað. Allir ættu að kannast við það sem gerðist í sumar og nú hefur Coutinho loksins tjáð sig um það.

Barcelona missti Neymar til Paris Saint-Germain og þeir vonuðust til þess að leysa hann af með Coutinho.

Þeir gerðu Liverpool gott tilboð en Liverpool vildi ekki selja. Coutinho bað svo um sölu, en enn vildi Liverpool ekki selja. Coutinho varð áfram í herbúðum Liverpool, en hvað hefur hann að segja?

„Það sem gerðist var að það kom upp starfstilboð, eins og gengur og gerist í lífinu. Stundum hefurðu áhuga og stundum ekki, og í þessu tilfelli, eins og allir vita, þá hafði ég áhuga," sagði Coutinho, en hann ræddi við brasilísku útgáfuna af ESPN.

„Það er mikill heiður að fá tilboð í sig frá svona frábæru félagi, en það er líka mikill heiður að vera hér - Liverpool er frábært félag."

„Núna er ég hérna og ég mun gera mitt besta, eins og alltaf."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner