Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mið 20. mars 2024 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Cancelo getur snúið aftur á völlinn
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Það voru góðar fréttir að berast úr herbúðum Barcelona þar sem rannsóknir hafa leitt í ljós að portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo glímir ekki við hjartavandamál.

Cancelo hefur verið lykilmaður í liði Barcelona á tímabilinu en hann var ekki til taks þegar Börsungar heimsóttu Atlético Madrid í meistaradeildarbaráttu spænsku deildarinnar um helgina.

Hinn 17 ára gamli Hector Fort spilaði í vinstri bakvarðarstöðunni í fjarveru Cancelo og stóð sig vel í frábærum 0-3 sigri.

Cancelo var ekki með vegna þess að hann þurfti að undirgangast rannsóknir vegna mögulegs hjartavandamáls eftir að náinn ættingi hann greindist með alvarlegan galla sem getur verið arfgengur.

Leikmenn Barcelona tileinkuðu Cancelo sigurinn gegn Atlético Madrid en geta andað léttar eftir jákvæða niðurstöðu úr rannsóknum.
Athugasemdir
banner
banner