Aston Villa tekur á móti Chelsea á Villa-Park í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19:00 í kvöld.
Douglas Luiz er búinn að taka út leikbann sitt og mætir því aftur í lið Villa en Moussa Diaby tekur sér sæti á bekknum. Það er eina breyting Unai Emery.
Mauricio Pochettino gerir á meðan þrjár breytingar á liði Chelsea en Cole Palmer, besti maður liðsins á tímabilinu, snýr aftur í byrjunarliðið.
Trevoh Chalobah og Thiago Silva koma inn í liðið en Enzo Fernandez er ekki með og þeir Axel Disasi og Alfie Gilchrist koma á bekkinn.
Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Luiz, McGinn, Tielemans, Rogers, Bailey, Watkins.
Varamenn: Olsen, Diego Carlos, Chambers, Lenglet, Diaby, Duran, Kesler-Hayden, Iroegbunam, Kellyman.
Chelsea: Petrovic, Chalobah, Thiago Silva, Badiashile, Cucurella, Caicedo, Gallagher, Madueke, Palmer, Mudryk, Jackson.
Varamenn: Bettinelli, Curd, Disasi, Casadei, Deivid, Gilchrist, Acheampong, George, Dyer.
Athugasemdir