Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 21. mars 2024 12:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andrea Rán í FH (Staðfest) - Tilkynna skiptin líka á spænsku
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.
Mynd: Club America
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir er gengin í raðir FH en Fótbolti.net greindi fyrst frá því að hún væri að ganga í raðir félagsins fyrr í þessari viku. Fleiri félög á Íslandi höfðu áhuga á henni en hún valdi að fara í FH.

Andrea Rán hefur skrifað undir samning við Fimleikafélagið sem gildir út komandi keppnistímabil.

Hún lék síðast á Íslandi árið 2021 en það sumarið hélt hún frá uppeldisfélaginu Breiðabliki til Houston Dash í Bandaríkjunum.

Í kjölarið lék hún svo með tveimur félögum í Mexíkó. Fyrst Club America og svo Mazatlan seinni hluta síðasta árs. Bæði leika í Liga MX deildinni, efstu deild.

Andrea er 28 ára miðjumaður sem á að baki tólf A-landsleiki og var síðast í landsliðshópnum haustið 2021. Í þessum tólf leikjum hefur Andrea skorað tvö mörk.

Við skipti sín til félaga vestanhafs og veruna í Mexíkó þar öðlaðist Andrea mikinn fjölda af fylgjendum á samfélagsmiðlum og er til að mynda með 123 þúsund fylgjendur á Instagram. FH sá leik á borði og ákvað að kynna skiptin einnig á spænsku. Félagið vísar í spænska textanum á verslun sína þar sem hægt er að versla treyjur merktar Andreu.

Á ferli sínum hefur Andrea leikið með Breiðabliki, háskólaliði University of South Florida, franska liðinu Le Havre, Houston Dash, Club America og svo Mazatlan.

FH var spútniklið Bestu deildarinnar í fyrra og endaði í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner