Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
Leist langbest á Fylki: Erfið ákvörðun en ég stend með henni
Gunnar Magnús: Vikan á heimilinu verður eitthvað sérstök
Jóhann Kristinn: Ómetanlegt að hafa markaskorara eins og Söndru
Guðni Eiríks: Þetta var ekki 4-0 leikur
Eva Rut: Skítamark úr horni
Sigurborg Katla: Hamingja í vatninu
Nik: Telma vann leikinn fyrir okkur
Áslaug Munda sneri óvænt til baka - „Mjög ánægð með að vera komin heim"
Bryndís Rut: Partur af fjölskyldunni þó hún sé núna í öðru liði
Fyrirliði Stjörnunnar um umdeilda atvikið: Þetta er nánast bara 'one in a million'
Stjáni Guðmunds sáttur eftir sigur: Þetta var stórfurðulegur leikur
Óli Kristjáns: Ég vil frekar spila svona og taka ákveðnar áhættur
Pétur: Hef ekki hugmynd hvenær hún spilar
Glenn ósáttur með samskiptin við dómara - „Finnst það ósanngjarnt“
„Vonandi getur maður kennt þessum strákum eitthvað"
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
   fim 21. mars 2024 22:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísak Bergmann: Guð var með okkur í vítinu
Icelandair
Ísak Bergmann Jóhannesson.
Ísak Bergmann Jóhannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er með sætari sigrum sem maður hefur upplifað á ferlinum," sagði Ísak Bergmann Jóhannesson eftir 4-1 sigur Íslands gegn Ísrael í kvöld.

Strákarnir okkar munu á þriðjudaginn spila úrslitaleik við Úkraínu um sæti á Evrópumótinu eftir þennan frábæra sigur í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísrael 1 -  4 Ísland

„Við erum komnir í úrslitaleik um að komast á EM. Ef einhver hefði sagt það við okkur fyrir ári síðan þá hefðum við örugglega tekið því fagnandi."

Ísrael fékk tækifæri til að jafna í 2-2 en þeir settu boltann fram hjá úr vítaspyrnu. Íslenska liðið gekk svo frá leiknum en það má með sanni segja að það sé stutt á milli í þessu.

„Það var einhver uppi með okkur núna, Guð var með okkur í vítinu þegar hann skaut fram hjá. Maður var farinn að hugsa hvað væri að fara að gerast en svo skorar Albert geggjað mark, 3-1, og maður róast við það. Þetta rauða spjald gerði líka svolítið mikið," sagði Ísak.

Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner