Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 21. mars 2024 15:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stjórnarmaður FH um Gylfa: Langheiðarlegast að segja hlutina eins og þeir eru
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi í leik með Val gegn ÍA í gær.
Gylfi í leik með Val gegn ÍA í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi gerði tveggja ára samning við Valsmenn.
Gylfi gerði tveggja ára samning við Valsmenn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að Gylfi Þór Sigurðsson skrifaði undir tveggja ára samning við Val í síðustu viku. Þetta eru risastórar fréttir fyrir fótboltann á Íslandi og verður gaman að fylgjast með Gylfa í deildinni hér heima í sumar.

Áður en hann samdi við Val þá reyndu önnur félög á Íslandi að klófesta hann. Víkingur gerði heiðarlega tilraun og þá hafði KR líka áhuga.

Uppeldisfélag Gylfa, FH, fór ekki í viðræður við hann og Breiðablik, sem hann spilaði líka með í yngri flokkum, gerði það ekki heldur. Stuðningsmenn FH eru margir hverjir svekktir að hafa misst af Gylfa en leikmaðurinn hefur sjálfur talað um að honum hafi ekki verið boðinn samningur hjá FH, en var honum boðið að æfa með félaginu.

Jón Erling Ragnarsson, fyrrum leikmaður FH og núverandi stjórnarmeðlimur, skrifar í dag opinn pistil á Facebook þar sem hann skrifar um Gylfa og félagaskipti hans til Vals. Í pistlinum segir hann að Gylfi og umboðsmaður hans hafi vitað af því að FH gæti ekki borgað sömu laun og Valur, og Gylfi hafi ekki þegið boð félagsins að mæta á æfingar hjá FH.

„Fjölmiðlafárið í kringum komu Gylfa Sig heim í íslenska knattspyrnu er skiljanlegt. Frábært fyrir Bestu deildina að fá heim einn af fimm bestu knattspyrnumönnum sögunnar og klárlega langbesta leikmann sem komið hefur upp úr yngri flokka starfi Fimleikafelagsins," segir Jón Erling.

„Draumur allra FH-inga að fá að sjá Gylfa leika í FH-treyjunni í Kaplakrika varð ekki að veruleika og í staðinn valdi hann Valstreyjuna. Það var hins vegar ekki fallega gert af Gylfa að ítrekað gefa í skyn að hann hefði beðið við faxtækið eftir tilboði frá FH, 'en því miður' ekki fengið. Gylfa Þór var nefnilega formlega boðið að æfa með félaginu þegar hann tók aftur fram knattspyrnuskóna eins og hann hefur sjálfur staðfest. Ef hugur Gylfa hefði leitað heim til uppeldisfélagsins, þá hefði hann fyrst sennilega þegið boðið að æfa með félaginu, nú eða þá að umboðsmenn hans hefðu látið félagið vita að hann hefði hug á að koma heim og leika knattspyrnu - líkt og kaupin gerast á eyrinni og er þeirra helsta hlutverk."

„Það er langheiðarlegast að segja hlutina eins og þeir eru. Það er ljóst að Gylfi í formi er of góður fyrir Bestu deildina og því þyngdar sinnar virði í gulli. Gylfi og umboðsmenn vissu að FH væri ekki tilbúið að greiða leikmanninum laun sem nema hið minnsta ársframlagi ÍTF til knattspyrnudeildar FH fyrir meistaraflokk karla og kvenna, samkvæmt þeim fjárhæðum sem hafa verið nefndar í fjölmiðlum. Fimleikafélagið á engar íbúðir eða blokkir eða land til að selja til að standa við slíkan samning, og alla hina. FH er einfaldlega á annarri vegferð og á fullri ferð að búa til skemmtilegt lið sem er stútfullt af hæfileikaríkum leikmönnum sem völdu að leika með Fimleikafélaginu," segir Jón Erling.

Afar áhugaverður pistill, svo ekki sé meira sagt en Valur og FH eigast við í Bestu deildinni þann 25. maí næstkomandi. Verður það mjög svo áhugaverður leikur.

Gylfi spilaði í gær sinn fyrsta leik fyrir Val þegar liðið tapaði gegn ÍA í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum Lengjubikarsins.


Athugasemdir
banner
banner