Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   fim 25. september 2014 10:45
Magnús Már Einarsson
Mynd: Balotelli með Liverpool hárgreiðslu fyrir grannaslaginn
Mynd: Instagram
Margir stuðningsmenn Liverpool eru ánægðir með nýja hárgreiðslu sem Mario Balotelli framherij liðsins birti á Instagram í morgun.

Í tilefni af grannaslagnum gegn Everton um helgina ákvað Balotelli að skella sér í klippingu.

Balotelli er með skrautlega greiðslu að venju en á annarri hliðinni er hann með ,,Liverbird" sem er fuglinn í merki Liverpool.

Afraksturinn má sjá hér til hliðar en stuðningsmenn Liverpool virðast almennt vera ánægðir með þessa hárgreiðslu Balotelli.
Athugasemdir
banner