De Jong framlengir við Barcelona (Staðfest)
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona til 2029. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Börsungum í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25093 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona til 2029. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Börsungum í dag.
Viðar Örn Kjartansson mun yfirgefa KA þegar tímabilinu í Bestu deildinni lýkur. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.

Þau tíðindi koma ekki mjög á óvart, hann hefur verið í takmörkuðu hlutverki á tímabilinu og samningur hans að renna út.

Hann var ekki í leikmannahópi KA í síðasta leik og tveir leikir eru eftir af tímabilinu.

Viðar er 35 ára framherji sem er að ljúka sínu öðru tímabili hjá KA eftir að hafa þar á undan verið í áratug erlendis sem atvinnumaður.
Fotbollskanalen í Svíþjóð ræddi við Graham Potter um möguleika þess að hann taki við sænska landsliðinu eftir brottrekstur Jon Dahl Tomasson á dögunum.
Sænska fótboltasambandið hefur tilkynnt að búið sé að reka Jon Dahl Tomasson úr starfi landsliðsþjálfara. „Fótbolti er úrslitabransi,“ segir Kim Kallström, yfirmaður fótboltamála hjá sænska sambandinu.
Hinn 33 ára gamli Jack Wilshere er orðinn stjóri Luton Town en félagið tilkynnti það í morgun. Hann tekur við af Matt Bloomfield sem var rekinn eftir innan við ár í starfi. Luton var í úrvalsdeildinni en hefur fallið niður um tvær deildir á tveimur árum og er nú í ellefta sæti C-deildarinnar.
Todor Hristov er tekinn við Hetti/Hugin og mun stýra liðinu til næstu þriggja ára en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Dragan Stojkovic hefur sagt upp störfum sem þjálfari karlalandsliðsins Serbíu eftir 1-0 tapið gegn Albaníu í undankeppni HM í gær.
Knattspyrnudeild Aftureldingar tilkynnti í dag nýtt og spennandi þjálfarateymi hjá meistaraflokki kvenna en Ísak Ólason verður aðalþjálfari liðsins og mun Patrekur Orri Guðjónsson vera honum til aðstoðar.
Skotinn Ross Wilson hefur verið ráðinn nýr yfirmaður íþróttamála hjá Newcastle United en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Austurríski þjálfarinn Adi Hütter var látinn taka poka sinn hjá franska félaginu Mónakó í gær.
„Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur KA-mönnum en ljóst er að breytingar verða á liðinu okkar og treystum við Hadda fullkomlega til að leiða félagið í þeirri vegferð," segir í tilkynningu KA. Þar er tilkynnt um nýjan tveggja ára samning KA við þjálfarann Hallgrím Jónasson. Hann hefur stýrt KA sem aðalþjálfari síðan í lok sumars 2022. Á síðasta ári stýrði hann liðinu til sigurs í Mjólkurbikarnum. KA er sem stendur í áttunda sæti Bestu deildarinnar.
KSÍ hefur ráðið Halldór Jón Sigurðsson, Donna, sem nýjan þjálfara U19 landsliðs kvenna og verður hann jafnframt aðstoðarþjálfari U17/U16 liðs kvenna.
Haukur tilkynntu í dag um komu tveggja nýrra leikmanna til félagsins. Börkur Bernharð Sigmundsson og Kári Vilberg Atlason eru búnir að skrifa undir hjá félaginu. Börkur gerir þriggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið og Kári tveggja ára samning. Börkur kemur frá Kára en hann er fæddur árið 2005 og er uppalinn hjá ÍA.
Björgvin Brimi Andrésson hefur hefur skrifað undir samning við Íslandsmeistara Víkings út árið 2029 en hann kemur frá uppeldisfélagi sínu, Gróttu. Björgvin Brimi á tvo leiki með KR (2024) í Bestu Deildinni en hann var þá aðeins 16 ára gamall. Björgvin lék með Gróttu á nýliðnu tímabili og skoraði 8 mörk í 20 leikjum fyrir liðið sem tryggði sér sæti í Lengjudeildinni á nýjan leik.
Watford hefur ákveðið að reka Paulo Pezzolano sem stjóra eftir aðeins fimm mánuði og tíu leiki við stjórnvölinn. Guardian greinir frá þessu og segir að Javi Gracia snúi aftur. Pezzolano tók við Watford í maí og honum var tilkynnt að hann myndi ekki stýra æfingu liðsins í dag. Úrúgvæinn verður ellefti stjórinn sem Watford rekur frá því í byrjun árs 2020.
Keflavík er búið að ráða Króatann Vedran Medenjak sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Hann hefur áður þjálfað yngri flokka hjá Val og Keflavík Vedran tekur við af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur, hún lét af störfum eftir tímabilið sem var vonbrigði hjá Keflavík. Liðinu var spáð góðu gengi, efsta sæti deildarinnar, en niðurstaðan varð 8. sæti.
Spænski bakvörðurinn Jordi Alba leggur skóna á hilluna eftir þetta tímabil en hann greindi frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum í dag.

Þorlákur Árnason verður áfram þjálfari ÍBV á næstu leiktíð, en þetta kemur fram í tilkynningu ÍBV.

ÍBV var í botnsæti flestra spámanna fyrir tímabil en liðið hefur þegar tryggt veru sína í Bestu-deildinni á næsta ári og eru sem stendur í efsta sæti neðri hlutans.

Þorlákur tók við starfinu síðasta vetur eftir að Hermann Hreiðarsson lét af störfum en hann kom liðinu upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

Fabio Cannavaro hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Úsbekistan og mun stýra liðinu á HM á næsta ári. Liðið tryggði sér sæti á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada með jafntefli gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum en liðið tapaði aðeins einum af 15 leikjum sínum í undankeppninni. Cannavaro er 52 ára en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Dinamo Zagreb í apríl. Hann var stjóri liðsins í þrjá mánuði og stýrði 14 leikjum.
Jakob Héðinn Róbertsson er genginn í raðir KA frá Völsungi en hann hefur skrifað undir samning út tímabilið 2028. „Jakob hefur vakið verðskuldaða athygli með liði Völsungs og verður virkilega spennandi að fylgjast með framgöngu hans í gula og bláa búningnum," segir á heimasíðu KA.