
Keflavík er búið að ráða Króatann Vedran Medenjak sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Hann hefur áður þjálfað yngri flokka hjá Val og Keflavík
Vedran tekur við af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur, hún lét af störfum eftir tímabilið sem var vonbrigði hjá Keflavík. Liðinu var spáð góðu gengi, efsta sæti deildarinnar, en niðurstaðan varð 8. sæti.
Vedran tekur við af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur, hún lét af störfum eftir tímabilið sem var vonbrigði hjá Keflavík. Liðinu var spáð góðu gengi, efsta sæti deildarinnar, en niðurstaðan varð 8. sæti.
Úr tilkynningu Keflavíkur
Vedran er UEFA-Pro þjálfari frá Króatíu. Eftir farsælan feril í Króatíu sem yfirmaður knattspyrnuakademíu Slaven Belupo, aðalþjálfari Koprivnica og héraðsþjálfari hjá knattspyrnusambandinu, flutti hann til Íslands og hóf að þjálfa yngri flokka hjá Val áður en hann tók við 2. flokki Keflavíkur árið 2023.
Á tveimur árum hefur hann lyft liðinu úr C-deild í A-deild og samhliða því þróað leikmenn sem nú eru að banka á dyrnar hjá meistaraflokki.
Athugasemdir