„Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur KA-mönnum en ljóst er að breytingar verða á liðinu okkar og treystum við Hadda fullkomlega til að leiða félagið í þeirri vegferð," segir í tilkynningu KA.
Þar er tilkynnt um nýjan tveggja ára samning KA við þjálfarann Hallgrím Jónasson. Hann hefur stýrt KA sem aðalþjálfari síðan í lok sumars 2022. Á síðasta ári stýrði hann liðinu til sigurs í Mjólkurbikarnum.
KA er sem stendur í áttunda sæti Bestu deildarinnar.
Þar er tilkynnt um nýjan tveggja ára samning KA við þjálfarann Hallgrím Jónasson. Hann hefur stýrt KA sem aðalþjálfari síðan í lok sumars 2022. Á síðasta ári stýrði hann liðinu til sigurs í Mjólkurbikarnum.
KA er sem stendur í áttunda sæti Bestu deildarinnar.
Fréttatilkynning KA:
Hallgrímur Jónasson og knattspyrnudeild KA hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning og verður Hallgrímur því áfram þjálfari meistaraflokks KA næstu tvö árin hið minnsta. KA leikur áfram í deild þeirra bestu og spennandi tímar framundan.
Haddi gekk í raðir KA fyrir sumarið 2018 en hann kom norður eftir að hafa leikið sem atvinnumaður frá árinu 2009 með liðunum GAIS, SønderjyskE, OB og Lyngby BK auk þess lék hann 16 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og gerði í þeim þrjú mörk. Haddi kom af gríðarlegum krafti inn í KA og sýndi strax hversu metnaðarfullur hann er bæði innan sem utan vallar. Það kom því ekki á óvart að Haddi kom í kjölfarið inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks fyrir sumarið 2020, fyrst með Óla Stefáni Flóventssyni og síðar með Arnari Grétarssyni.
Haddi neyddist til að leggja skóna á hilluna fyrr en ætlunin var eftir erfið meiðsli sumarið 2020 en í framhaldi af því hefur hann lagt sig allan við þjálfunina og sótt helstu gráður á vegum UEFA. Undir lok sumarsins 2022 tók Haddi loks við sem aðalþjálfari KA og tryggði félaginu sæti í Sambandsdeild UEFA er KA endaði í 2. sæti efstudeildar.
Liðið náði frábærum árangri í Evrópu sumarið 2023 er KA komst alla leið í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en tapaði loks gegn stórliði Club Brugge. Sama sumar fór liðið alla leið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins og nýtti þá reynslu ári síðar er Haddi stýrði liðinu til fyrsta Bikarmeistaratitils í sögu KA sumarið 2024. Haddi var eðlilega kjörinn þjálfari ársins hjá félaginu fyrir þennan glæsilega árangur.
Haddi var kjörinn þjálfari ársins hjá KA árið 2024 eftir sigur í Mjólkurbikarnum
KA lék því aftur í Sambandsdeild UEFA í sumar er liðið féll úr leik gegn Silkeborg eftir framlengdan leik á Greifavellinum eftir hetjulega baráttu en liðin skildu jöfn 1-1 í Danmörku. Á dögunum tryggði KA sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu á næstu leiktíð þó enn séu tvær umferðir eftir af deildinni og verður það tíunda árið í röð sem KA leikur í efstudeild en aldrei í sögunni hefur KA leikið jafn lengi samfleytt í efstudeild í knattspyrnu.
Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur KA-mönnum en ljóst er að breytingar verða á liðinu okkar og treystum við Hadda fullkomlega til að leiða félagið í þeirri vegferð. Hann hefur skipað lykilhlutverk í þeirri miklu uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan félagsins undanfarin ár og hlökkum við svo sannarlega til að halda þessu góða starfi áfram með Hadda í brúnni.
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍBV | 25 | 9 | 6 | 10 | 30 - 31 | -1 | 33 |
2. KA | 25 | 9 | 6 | 10 | 36 - 45 | -9 | 33 |
3. ÍA | 25 | 10 | 1 | 14 | 35 - 45 | -10 | 31 |
4. Vestri | 25 | 8 | 4 | 13 | 24 - 38 | -14 | 28 |
5. Afturelding | 25 | 6 | 8 | 11 | 35 - 44 | -9 | 26 |
6. KR | 25 | 6 | 7 | 12 | 48 - 60 | -12 | 25 |
Athugasemdir