Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR23.01.2025, 11:00

Diego Carlos til Fenerbahce (Staðfest)

Varnarmaðurinn brasilíski Diego Carlos hefur skrifað undir hjá Fenerbahce í Tyrklandi en Aston Villa staðfestir þetta. Jose Mourinho stýrir Fenerbahce en liðið er í öðru sæti tyrknesku deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Galatasaray.

FRÉTTIR23.01.2025, 09:23

Marmoush til Man City (Staðfest) - „Egypski prinsinn“

Stuðningsmenn Manchester City hafa fengið fréttir sem lina þjáningarnar eftir tapið gegn PSG í gær. Egypski framherjinn Omar Marmoush hefur verið keyptur frá Eintracht Frankfurt í Þýskalandi á 59 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður er kynntur sem „egypski prinsinn“ og tekur við treyju númer 7 hjá Englandsmeisturunum. Hann hefur skrifað undir samning til sumarsins 2029. Marmoush hefur skorað 37 mörk og átt 20 stoðsendingar í 67 leikjum síðan hann kom til Frankfurt sumarið 2023. Þessi fjölhæfi framherji lék áður fyrir Wadi Degla, Wolfsburg,St. Pauli og Stuttgart. Hann hefur spilað 35 landsleiki fyrir Egyptaland og skorað sex mörk. Hann er þriðji leikmaðurinn sem City fær í janúarglugganum, á eftir Abdukodir Khusanov og Vitor Reis.

FRÉTTIR22.01.2025, 14:05

Wilfried Zaha til Charlotte (Staðfest)

Wilfried Zaha hefur skrifað undir samning við Charlotte FC í Bandaríkjunum en hann gengur í raðir félagsins á láni frá Galatasaray. Hann var á láni hjá Lyon í Frakklandi fyrri hluta tímabilsins en fann sig ekki þar.

FRÉTTIR22.01.2025, 12:12

Sigurður Arnar verður með ÍBV í Bestu deildinni (Staðfest)

ÍBV og Sigurður Arnar Magnússon hafa náð samkomulagi um tveggja ára framlengingu á samningi Sigurðar við félagið. Hann er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2026. Sigurður hefur spilað lengi með ÍBV og alls 157 KSÍ leiki fyrir félagið, hann á einnig nokkra leiki að baki fyrir KFS sem komu sumarið 2017. <i>„Hann hefur samhliða námi leikið með ÍBV síðustu ár en hann lék virkilega vel á nýliðnu tímabili í bandaríska háskólaboltanum og vakti athygli með háskólaliði sínu Ohio State. Sigurður leikur alla jafna sem miðvörður en hann er einnig gæddur eiginleikum sem gera honum auðvelt til að leika framar á vellinum. Fréttirnar eru mikið gleðiefni fyrir ÍBV og fagnaðarefni að Sigurður taki slaginn með ÍBV í Bestu deildinni,"</I> segir í tilkynningu ÍBV.

FRÉTTIR22.01.2025, 09:22

Sahin rekinn frá Dortmund eftir ömurlegt gengi (Staðfest)

Dortmund tilkynnti í morgun að búið væri að reka stjórann Nuri Sahin úr starfi. Það var gert eftir 2-1 tap liðsins gegn Bologna í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Tapið var það fjórða í röð í öllum keppnum og liðið hefur einungis unnið einn af níu síðustu leikjum sínum. Sahin hefur ekki náð viðunandi árangri sem stjóri liðsins eftir að hafa tekið við starfinu síðasta sumar. Tekið er fram að Dortmund muni upplýsa fljótlega um hver mun stýra liðinu gegn Werder Bremen í þýsku Bundesligunni á laugardag.

FRÉTTIR21.01.2025, 18:57

Þór Akureyri fær varnarmann frá Fílabeinsströndinni (Staðfest)

Þór Akureyri hefur fengið nýjan varnarmann, hann er Fílabeinsstrendingur sem heitir Yann Emmanuel Affi og er 29 ára gamall. Hann mun leika með Þórsliðinu í Lengjudeildinni á komandi leiktíð. Þór endaði í tíunda sæti deildarinnar í fyrra en varnarleikur liðsins var ekki góður.

FRÉTTIR21.01.2025, 14:44

Andri Fannar áfram hjá KA (Staðfest)

KA tilkynnti rétt í þessu að Andri Fannar Stefánsson væri búinn að framlengja samning sinn við KA út tímabilið 2025. Andri er 33 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá KA. Hann hefur spilað 182 leiki í deild, bikar og Evrópu fyrir KA og skorað í þeim 12 mörk. Hann lék sína fyrstu leiki sumarið 2008. Árið 2010 hélt hann í Val þar sem hann varð tvívegis Íslandsmeistari og tvívegis bikarmeistari. Hann sneri aftur í KA fyrir tímabilið 2019 og hefur verið þar síðan.

FRÉTTIR21.01.2025, 13:51

Kristján Oddur snýr aftur í Val (Staðfest)

Kristján Oddur Kristjánsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Val frá Gróttu. Þessi 17 ára leikmaður lék sex leiki með Gróttu í Lengjudeildinni í fyrra og einn bikarleik.

FRÉTTIR21.01.2025, 13:33

Telma Ívars til Rangers (Staðfest)

Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir hefur fengið félagaskipti til skoska stórliðsins Rangers. Fótbolti.net sagði fyrst frá því á dögunum að Telma væri að ganga í raðir félagsins. Telma skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við Rangers.

FRÉTTIR21.01.2025, 13:18

Heimaleikur Víkings verður í Helsinki (Staðfest)

Víkingur mun leika heimaleik sinn í einvíginu gegn Panathinaikos í Helsinki í Finnlandi en félagið hefur staðfest þetta. Vegna lélegra vallarmála hér á Íslandi þarf Víkingur að spila erlendis. UEFA gaf ekki leyfi fyrir því að leikurinn yrði spilaður í Danmörku eins og Víkingur hafði stefnt að en áður hafði því verið hafnað að leikið yrði í Færeyjum. Leikið verður á heimavelli HJK Helsinki sem er gervigrasvöllur. Leikurinn í Helsinki fer fram fimmtudaginn 13. febrúar og seinni leikurinn verður miðvikudaginn 19. febrúar eða fimmtudaginn 20. febrúar í Aþenu. Sigurliðið í einvíginu kemst í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar.

FRÉTTIR21.01.2025, 11:09

Vitor Reis til Man City (Staðfest)

Manchester City hefur staðfest kaup á varnarmanninum Vitor Reis en hann er 19 ára gamall og er keyptur fyrir 30 milljónir punda frá Palmeiras í Brasilíu. Reis er réttfættur miðvörður sem getur einnig leikið sem hægri bakvörður. Þrátt fyrir ungan aldur er hann sagður spila leikinn eins og hann hafi áratuga reynslu. <i>„Draumur hefur ræst. Síðan ég var ungur strákur hefur mig dreymt um tækifæri á borð við þetta og að spila fyrir stórt félag eins og City,"</i> segir Brasilíumaðurinn ungi. Reis er annar leikmaðurinn sem City kaupir í janúar, á eftir Úsbekanum Abdukodir Khusanov. Titilvörn Manchester City hefur gengið erfiðlega á tímabilinu, meðal annars vegna meiðslvandræða í vörn liðsins. City er líklegt til að tryggja sér sóknarmanninn Omar Marmoush frá Eintracht Frankfurt áður en glugganum verður lokað.

FRÉTTIR21.01.2025, 10:04

Andrés García til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur fengið spænska hægri bakvörðinn Andrés García frá Levante. Hann er 21 árs og kaupverðið er í kringum 6 milljónir punda. Samkvæmt tilkynningu frá enska úrvalsdeildarfélaginu getur García einnig spilað sem hægri vængmaður. Honum er lýst sem orkumiklum leikmanni sem er með auga fyrir mörkum. Hann hefur skorað þrjú mörk og átt þrjár stoðsendingar í 23 leikjum á þessu tímabili. Hann er annar leikmaðurinn sem Villa fær í þessum janúarglugga en hollenski sóknarmaðurinn Donyell Malen var keyptur frá Borussia Dortmund.

FRÉTTIR21.01.2025, 06:00

Jakub Moder frá Brighton til Feyenoord (Staðfest)

Miðjumaðurinn Jakub Moder er genginn til liðs við Feyenoord frá Brighton. Hann skrifar undir þriggja ára samning en hollenska liðið borgar um þrjár milljónir punda fyrir hann.

FRÉTTIR20.01.2025, 14:35

Mikael Egill framlengir í Feneyjum (Staðfest)

Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við ítalska A-deildarfélagið Venezia. Samningur hans var til 2027 en hann hefur nú framlengt um eitt ár til viðbótar og er bundinn til júní 2028.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.