Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24406 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR05.11.2024, 10:25

Hrannar stýrir Augnabliki áfram (Staðfest) - Fær nýtt starf hjá Blikum

Hrannar Bogi Jónsson er aftur mættur í Smárann og mun hann áfram stýra Augnabliki næstu árin. Ásamt því mun hann þjálfa 2. flokk Breiðabliks. Það stóð til að Hrannar Bogi, sem er mjög efnilegur þjálfari, myndi taka til starfa hjá Þrótti Reykjavík í yngri flokkum en það breyttist svo.

FRÉTTIR04.11.2024, 19:32

Omar Sowe til ÍBV (Staðfest)

<p>Omar Sowe er genginn til liðs við ÍBV en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.</p>

FRÉTTIR04.11.2024, 17:59

Edu hættur hjá Arsenal (Staðfest)

<p>Edu hefur sagt upp störfum sem íþróttastjóri Arsenal. Hann mun hefja störf hjá Nottingham Forest bráðlega.</p>

FRÉTTIR04.11.2024, 17:00

Emilía snýr aftur í KR (Staðfest)

KR tilkynnti í dag að Emilía Ingvadóttir væri búin að skrifa undir samning við félagið. Hún er varnarmaður, fædd 2002 og er uppalin í KR. Hún kemur frá Fram þar sem hún spilaði í 2. deild 2022 og Lengjudeildinni 2023. Hún var á láni hjá KR frá Fram á síðasta tímabili og hjálpaði KR upp úr 2. deild.

FRÉTTIR04.11.2024, 14:46

Grótta fær tvo efnilega frá KR (Staðfest)

Grótta tilkynnti í dag að tveir leikmenn væru gengnir í raðir félagsins frá grönnunum í KR. Það eru þeir Viktor Orri Guðmundsson og Aron Bjarni Arnórsson. Viktor Orri, sem er fæddur árið 2007, þekkir vel til hjá Gróttu. Hann hélt í KR frá Gróttu eftir sumarið 2020. <i>&bdquo;Viktor Orri Guðmundsson er snúinn aftur heim í Gróttu eftir nokkurra ára dvöl hjá KR. Viktor er 17 ára gamall og á að baki átta leiki fyrir yngri landslið Íslands og þrjá leiki fyrir meistaraflokk KR í æfingamótum,"</I> segir í tilkynningu Gróttu.

FRÉTTIR03.11.2024, 23:40

Sveinn Margeir riftir samningi sínum við KA (Staðfest)

<p>Sveinn Margeir Hauksson hefur rift samningi sínum við KA. Hjörvar Hafliðason vakti athygli á þessu í Dr. Football í dag og Sveinn staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net. Þetta tengist ekki á neinn hátt ósætti við KA segir Sveinn Margeir.</p>

FRÉTTIR02.11.2024, 13:32

Risafréttir frá Vestra: Andri Rúnar yfirgefur félagið (Staðfest)

Vestri var að senda frá sér tilkynningu á samfélagsmiðlum þar sem sagt er frá tíðindum í leikmannamálum. Stærstu tíðindin eru þau að Andri Rúnar Bjarnason og félagið hafi náð samkomulagi um að enda samstarfið. <i>„Vegna fjölskylduaðstæðna mun Andri ekki hafa tök á því að vera búsettur fyrir vestan fjarri fjölskyldu sinni. Við þökkum Andra kærlega fyrir samstarfið og óskum honum velfarðnaðar,"</I> segir í tilkynningunni. Framherjinn var talsvert frá vegna veikinda og meiðsla en á lokakaflanum reyndist hann gulls ígildi og hjálpaði liðinu að ná sínum markmiðum.

FRÉTTIR02.11.2024, 13:20

Frederik Schram ekki áfram á Íslandi (Staðfest) - „Frábært að spila fyrir Val"

Markvörðurinn Frederik Scham mun ekki spila áfram á Íslandi. Hann ýjaði að því í færslu á Instagram og staðfesti tíðindin við Fótbolta.net. Hann hefur leikið með Val í tvö og hálft ár en samningur hans rann út um mánaðamótin. Hann var orðaður við bæði KR og FH en heldur út fyrir landsteinana. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Danmerkur þar sem hann hóf feril sinn. Frederik segir líklegt að hann spili næst í Danmörku en hann viti það þó ekki alveg ennþá.

FRÉTTIR01.11.2024, 12:01

Rúben Amorim tekur við Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur staðfest ráðningu Rúben Amorim. Hann tekur við stjórnartaumunum hjá liðinu af Erik ten Hag. Samningur hans gildir til júní 2027 með ákvæði um að hægt sé að framlengja hann um eitt ár.

FRÉTTIR31.10.2024, 16:08

Tiago yfirgefur Fram (Staðfest)

Fram tilkynnti rétt í þessu að miðjumaðurinn Tiago Fernandes yrði ekki áfram hjá félaginu. Miðjumaðurinn kom fyrst til Fram árið 2018 og var í tvö tímabil áður en hann söðlaði um. Hann lék með Grindavík 2021 en sneri aftur í Fram fyrir tímabilið 2022 og átti þá frábært tímabil. Hann raðaði inn stoðsendingum í endurkomu Framara í efstu deild og vakti athygli annarra félaga. Hann var m.a. orðaður við bæði Breiðablik og Val. Í sumar var hann í varnarsinnaðra hlutverki, beið meira til baka sem aftasti miðjumaður, lék 22 leiki og lagði upp þrjú mörk. Hann er 29 ára Portúgali sem uppalinn er hjá Sporting. Samningur hans við Fram er að renna út og tilkynnti félagið í dag að hann yrði ekki endurnýjaður.

FRÉTTIR31.10.2024, 14:20

Jóhann Birnir heldur áfram með ÍR (Staðfest)

Eins og Fótbolti.net sagði frá fyrir stuttu, þá verður Jóhann Birnir Guðmundsson áfram þjálfari ÍR. ÍR hefur núna staðfest þau tíðindi en hann mun stýra liðinu næstu tvö árin. <i>„Jói kom fyrst til félagsins fyrir tveimur árum þar sem hann var ráðinn sem annar af tveimur aðalþjálfurum liðsins. Liðið hefur náð góðum árangri eftir komu Jóa til félagsins en við ætlum bara að gefa enn meira í á næsta ári og halda áfram að gera enn betur,"</I> segir í tilkynningu ÍR.

FRÉTTIR31.10.2024, 09:44

KR tilkynnir komu Alexanders Helga (Staðfest)

KR hefur birt fréttatilkynningu þess efnis að Alexander Helgi Sigurðarson sé genginn í raðir félagsins frá Breiðabliki. Það var sagt frá því í júlí síðastliðnum að Alexander Helgi væri búinn að semja um að fara til KR eftir tímabilið sem var að klárast um síðustu helgi.

FRÉTTIR30.10.2024, 11:32

Kristján Guðmunds og Matthías stýra Val saman (Staðfest)

Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson hafa saman tekið við kvennaliði Vals, þeir eru báðir aðalþjálfarar liðsins. Fjallað var um það í gær að Matthías, sem er fyrrum leikmaður Vals og fyrrum aðstoðarmaður Péturs Péturssonar hjá kvennaliðinu, væri að taka við en nú hefur verið opinberað að Kristján verður með honum. Kristján þekkir vel til hjá Val en hann þjálfaði meistaraflokk karla hjá félaginu í tvö ár. <i>„Ég spilaði undir Kristjáni sem leikmaður í Val og ber mikla virðingu fyrir honum sem þjálfara. Við höfum rætt saman og horfum á hlutina mjög svipað.,"</i> segir Matthías í fréttatilkynningu Vals.

FRÉTTIR29.10.2024, 22:37

Ómar Ingi hættur með HK (Staðfest)

Knattspyrnudeild HK tilkynnti í kvöld að Ómar Ingi Guðmundsson væri hættur sem þjálfari meistaraflokks karla, en hann hefur ákveðið að róa á önnur mið.

FRÉTTIR29.10.2024, 16:30

Erin McLeod semur við félag í Kanada (Staðfest)

Erin McLeod, sem lék með Stjörnunni síðastliðin tvö sumur, hefur samið við Halifax Tides FC í Kanada. Erin, sem er 41 árs, samdi við Stjörnuna í fyrra og lék síðasta sumar 16 leiki með liðinu í Bestu deildinni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.