Fotbolti.net
29.10.24 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Erin McLeod semur við félag í Kanada (Staðfest)

Erin Mcleod.

Erin Mcleod.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Erin McLeod, sem lék með Stjörnunni síðastliðin tvö sumur, hefur samið við Halifax Tides FC í Kanada.

Erin, sem er 41 árs, samdi við Stjörnuna í fyrra og lék síðasta sumar 16 leiki með liðinu í Bestu deildinni.
Erin á að baki 119 landsleiki fyrir Kanada en hún ætlar að klára ferilinn í heimalandi sínu.

„Ég hef viljað spila í þessari deild frá því ég var barn," segir Erin við fjölmiðla í Kanada.

„Ég er 41 árs ung og það er raunveruleikinn. En ég vil halda áfram að keppa. Ég er spennt að framlengja ferilinn minn og ég er spennt að koma heim."

Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving er áfram samningsbundin Stjörnunni út næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.