Tuchel tekinn við enska landsliðinu (Staðfest)
Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti landsliðsþjálfari Englands. Ráðningin á honum hefur verið staðfest en hann mun taka formlega við stjórn liðsins í janúar 2025.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24407 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti landsliðsþjálfari Englands. Ráðningin á honum hefur verið staðfest en hann mun taka formlega við stjórn liðsins í janúar 2025.
Markvörðurinn Sveinn Óli Guðnason hefur ákveðið að yfirgefa Þrótt R. eftir að samningur hans við uppeldisfélagið rann út í sumar.
Börkur Edvardsson er að hætta sem formaður knattspyrnudeildar Vals en hann greinir frá tíðindunum í opinni Facebook færslu í dag. <i>„Ég hef ákveðið að láta staðar numið eftir 21 ár í sjálfboðaliðastarfi og mun ekki bjóða mig fram til formanns né til stjórnarsetu í knattspyrnudeild Vals á komandi haustfundi félagsins sem haldinn verður 21. október,"</I> skrifar Börkur. Börkur hefur verið formaður knattspyrnudeildar frá árinu 2003. Í formannstíð Barkar varð Valur 14 sinnum orðið Íslandsmeistari í fótbolta og tíu sinnum bikarmeistari. Hann segir í færslu sinni að það sé mikilvægt að Valur ráði yfirmann knattspyrnumála og framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar.
Þorlákur Árnason er hættur sem þjálfari kvennaliðs Damaiense í Portúgal. Fram kemur í yfirlýsingu frá félaginu að Þorlákur hafi ekki séð fyrir sér að geta tekið liðið lengra undir núverandi kringumstæðum.
Jonas Eidevall hætti í morgun sem aðalþjálfari kvennaliðs Arsenal. Hann vann deildabikarinn tvívegis sem þjálfari liðsins en hann var þjálfari þess í þrjú ár. Eidevall er 41 árs Svíi sem kom frá Rosengård árið 2021. Hann skilur við Arsenal í sjötta sæti sem er ekki ásættanleg staða hjá Arsenal. Eftir fjóra leiki í deildinni hefur liðið einungis unnið einn leik.
Arnór Sveinn hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og tekur við keflinu af Eyjólfi Héðinssyni sem er að koma til annarra starfa hjá Breiðabliki. Arnór Sveinn tekur við sem aðstoðarþjálfari að tímabilinu loknu en þá tekur Eyjólfur við sem deildarstjóri meistaraflokka hjá félaginu. Arnór Sveinn er í dag leikmaður Breiðabliks, hann er 38 ára og leggur skóna á hilluna í lok tímabils.
Leikur Íslands og Tyrklands fer fram á Laugardalsvelli í kvöld. Óvissa var með það hvort leikurinn færi fram út af ástandi vallarins. Leikurinn hefst klukkan 18:45. <a href="https://www.visir.is/g/20242634791d/landsleikurinn-fer-fram-i-kvold" target="_blank">Vísir</a> segir frá því að dómarar hafi metið völlinn leikhæfan. Þeir fóru og skoðuðu hann núna um klukkan 14.
Guðmundur Óli Bergmann Steingrímsson er nýr þjálfari Magna á Grenivík en hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið.
<p>Brynjar Kristmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking Ólafsvík en hann hefur verið þjálfari liðsins undanfarin tvö ár.</p>
Marc McAusland sagði í viðtali við <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/09/23/utilokar_ekki_ad_leggja_skona_a_hilluna/" target="_blank"><i>mbl.is</i></a> eftir lokaleik tímabilins hjá ÍR að hann útilokaði ekki að leggja skóna á hilluna. McAusland er fyrirliði ÍR og leiddi nýliðanna í umspilið í Lengjudeildinni. Skotinn reyndi var algjör lykilmaður í liði ÍR sem kom mjög mörgum á óvart í sumar og endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar eftir að hafa verið spáð falli. Hann skoraði tvö mörk í 23 leikjum í sumar.
ÍA tilkynnti í dag um breytingar á þjálfarateymum meistaraflokka félagsins. Dúna Sturlaugsdóttir, fyrrum styrktarþjálfari kvennalandsliðsins, hefur verið ráðin sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna „með áherslu á styrktarþjálfun og þróun yngri kvenna leikmanna hjá félaginu." Guðrún Þorbjörg, Dúna, er fyrrum fyrirliði ÍA og kemur inn í þjálfarateymið í stað Aldísar Ylfu Heimisdóttur. Aldís var aðstoðarþjálfari Skarphéðins Magnússonar á liðnu tímabili.
Selfoss tilkynnti rétt í þesu að spænski miðvörðurinn Jose Manuel Lopez Sanchez verði áfram hjá félaginu. Hann skrifar undir tveggja ára samning á Selfossi. Fyrri samningur hefði runnið út í lok næsta mánaðar. Jose, sem er 25 ára gamall, gekk til liðs við félagið fyrir tímabilið 2024 og átti gott tímabil. Selfoss vann 2. deildina í sumar og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Selfoss gerði gott betur og vann einnig Fótbolti.net bikarinn í lok síðasta mánaðar. Jose kom við sögu í 17 deildarleikjum og skoraði tvö mörk, lék tvo leiki í Mjólkurbikarnum og fjóra af fimm leikjum liðsins í Fótbolti.net bikarnum.
Yan Couto hefur verið á láni hjá Dortmund í rúma tvo mánuði en í dag var tilkynnt að þýska félagið væri búið að ganga frá kaupum á lekmanninum. Couto er brasilískur vængmaður sem kom á láni frá Manchester City í sumar. Fjallað var um að í lánssamningum væri kaupákvæði sem varð að kaupskyldu sem nú þegar er búið að ganga frá.
Bjarni Þórður Halldórsson hefur verið ráðinn sem nýr aðalþjálfari kvennaliðs Fylkis. Þessar fregnir eru staðfestar í dag eftir að greint var frá þeim í gær.
ÍA tilkynnti í dag að félagið væri búið að framlengja samninginn við Jón Þór Hauksson til næstu þriggja ára. Jón Þór er á sínu þriðja tímabili sem þjálfari liðsins. ÍA féll úr Bestu deildinni 2022 en vann Lengjudeildina og kom sér aftur upp í fyrra. Sem nýliði er ÍA núna í 5. sæti og á möguleika á Evrópusæti þegar tvær umferðir eru eftir af Íslandsmótinu.
Nacho Gil verður áfram leikmaður Selfoss og mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Spænski miðjumaðurinn kom á láni frá Vestra í sumarglugganum og hjálpaði Selfossi að vinna 2. deildina og Fótbolti.net bikarinn. Nacho er 31 árs og kom fyrst til Íslands árið 2018 og lék í tvö tímabil með Þór í Lengjudeildinni. Hann fór svo í Vestra þar sem hann var í fjögur tímabil í Lengjudeildinni og hálft í Bestu deildinni.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er ekki lengur samningsbundin Val því samningi hennar við félagið hefur verið rift. Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri Vals, staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net í dag. Berglind skrifaði undir tveggja ára samning við Val í vor. Hún var að snúa aftur á völlinn eftir barnsburð og skoraði fjögur mörk í 13 deildarleikjum í sumar.
Red Bull hefur tilkynnt Jurgen Klopp sem nýjan yfirmann fótboltamála hjá Red Bull á heimsvísu. Þessi fyrrum stjóri Liverpool hefur skrifað undir langtímasamning hjá Red Bull og hefur störf 1. janúar.
Kevin Phillips hefur byrjað þjálfaraferilinn vel og er tekinn við liði AFC Fylde í ensku National League deildinni, sem er fimmta efsta deildin þar í landi.
Sæþór Ívan Viðarsson mun leika með Hetti/Hugin í 2. deild karla á næsta ári eftir að hafa verið kynntur sem nýr leikmaður félagsins í kvöld.