Miralem Pjanic til CSKA Moskvu (Staðfest)
Bosníski miðjumaðurinn Miralem Pjanic er búinn að semja við CSKA Moskvu í efstu deild rússneska boltans.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24407 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Bosníski miðjumaðurinn Miralem Pjanic er búinn að semja við CSKA Moskvu í efstu deild rússneska boltans.
Þorleifur Óskarsson er hættur þjálfun kvennaliðs ÍR en þetta staðfestir hann við Fótbolta.net. Hann nýtti sér riftunarákvæði í samningi sínum. Þorleifur hefur þjálfað ÍR frá 2022 og undir hans stjórn fór liðið upp úr 2. deild. Í sumar féll liðið úr Lengjudeildinni.
Franski varnarmaðurinn Raphaël Varane hefur óvænt lagt fótboltaskóna á hilluna eftir enn ein meiðslin sem hann verður fyrir á ferlinum. Hann er 31 árs.
Aron Einar Gunnarsson er genginn í raðir félags í Katar, hann er kominn með leikheimild þar og mun spila þar í vetur. Aron staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Viðtal við hann verður svo birt seinna í dag. Félagið sem Aron semur við er í Meistaradeildinni í Asíu og þar má tefla fram fleiri erlendum leikmönnum en í deildinni í Katar.
Bandaríski varnarmaðurinn Hannah Sharts, sem samdi við Stjörnuna fyrir tímabilið í Bestu deildinni, er gengin í raðir Racing Power í Portúgal. Sharts er 25 ára og skoraði þrjú mörk í 18 leikjum með Stjörnunni í sumar, sem er góð tölfræði fyrir varnarmann.
Alex Freyr Hilmarsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV um þrjú ár. Fyrri samningur var að renna út núna í vetur. Alex Freyr, sem er fyrirliði ÍBV, kom við sögðu í 17 leikjum í sumar þegar liðið varð Lengjudeildarmeistari. Hann er 31 árs miðjumaður og tekur aftur slaginn með liðinu í efstu deild, eftir eitt ár í Lengjudeildinni.
Tony Popovic hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Ástralíu eftir að Graham Arnold sagði starfi sínu lausu eftir 1-0 tap gegn Barein og jafntefli gegn Indónesíu í undankeppni HM. Þessi úrslit gera það að verkum að Ástralía er í fimmta sæti í Asíuhluta undankeppninnar en aðeins efstu tvö liðin komast beint á HM 2026.
Tyrkneski þjálfarinn Erol Bulut hefur verið rekinn úr starfi sínu sem stjóri Cardiff City í ensku B-deildinni en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Markvörðurinn Viktor Freyr Sigurðsson er genginn í raðir Fram. Hann er búinn að semja við félagið eftir að hafa spilað allan sinn feril með Leikni Reykjavík eða venslafélaginu KB. Viktor skrifar undir tveggja ára samning í Úlfarsárdal. Hann er fæddur árið 2000 og á að baki 115 leiki í meistaraflokki. Viktor tók við sem aðalmarkvörður Leiknis árið 2022 og varði mark liðsins í Bestu deildinni það tímabilið. Hann hefur svo verið aðalmarkvörður liðsins síðustu tvö tímabilin í Lengjudeildinni. Viktor lék 21 leik í Lengjudeildinni í sumar, hélt þrisvar sinnum hreinu og fékk á sig 33 mörk.
UEFA hefur staðfest á vef sínum að Víkingur muni leika heimaleiki sína í Sambandsdeildinni á Kópavogsvelli en leikið verður snemma dags.
<p>Roma hefur staðfest að Ivan Juric hefur tekið við af Daniele De Rossi sem stjóri liðsins.</p>
Narcis Pelach hefur verið ráðinn nýr stjóri Stoke City og gert þriggja ára samning við félagið. Þessi 36 ára Katalóni var í þjálfarateymi Norwich City. Hann tekur við Stoke af Steven Schumacher en liðið situr núna í 13. sæti Championship-deildarinnar.
Króatinn Ivan Perisic hefur lokið læknisskoðun hjá hollenska félaginu PSV Eindhoven og skrifað undir samning til júní 2025. Perisic er 35 ára og kemur til PSV með reynslu og leiðtogahæfileika. Hann hefur átt blómlegan feril með félögum á borð við Bayern München, Inter og Tottenham.
Bordeaux, sem spilar í fjórðu efstu deild í Frakklandi, hefur krækt í Andy Carroll á frjálsri sölu. Carroll er enskur framherji, 35 ára, sem kemur til Bordeaux eftir að hafa spilað með Amiens í frönsku B-deildinni á síðasta tímabli. Hann fékk samningi sínum við Amiens rift til að geta samið við Bordeaux. Bordeaux var dæmt niður í fjórðu efstu deild í sumar eftir að hafa farið í gjaldþrot. Félagið á sér ríka sögu en þurfti að endurstilla allt hjá félaginu eftir gjaldþrotið.
Franski miðjumaðurinn Adrien Rabiot er genginn í raðir Marseille og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Juventus rann út í sumar. Hann var orðaður við Man Utd og Liverpool í sumar en endaði á að skrifa undir í Frakklandi. Marseille er með tíu stig eftir fjóra leiki í frönsku deildinni. Mason Greenwood er stærsta stjarna Marseille en nú bætist franski landsliðsmaðurinn Rabiot við hópinn.
Anthony Martial, fyrrum sóknarmaður Manchester United, hefur gengið í raðir gríska félagsins AEK í Aþenu á frjálsri sölu. <i>„Töframaðurinn er að mæta,"</I> segir í tilkynningu AEK á samfélagsmiðlum. Martial lendir í grísku höfuðborginni í kvöld og ætla stuðningsmenn AEK að hópast á flugvöllinn og taka á móti honum. Þessi 28 ára leikmaður mun þéna yfir 450 milljónir íslenskra króna á ári. Hann var í níu ár hjá Manchester United en náði aldrei að sýna almennilegan stöðugleika. Hann sýndi hæfileika sína við og við en stóð ekki undir væntingum. Hann spilaði 317 leiki og skoraði 90 mörk. AEK er þriðja sigursælasta lið Grikklands, á eftir Olympiakos og Panathinaikos. Liðið er sem stendur á toppi grísku deildarinnar.
Ítalska félagið Roma hefur rekið Daniele De Rossi þegar aðeins fjórum umferðum er lokið í Seríu-A. De Rossi var ráðinn til að taka við af Jose Mourinho í janúar en Roma er án sigurs eftir fjóra deildarleiki á tímabilinu, þrír þeirra hafa endað með jafntefli og þá kom tap á heimavelli gegn Empoli í síðasta mánuði.
Hollenski miðjumaðurinn Davy Klaassen er kominn aftur heim í Ajax en þetta kemur fram í tilkynningu frá hollenska stórveldinu í dag.
HK tilkynnti í dag að fyrirliði kvennaliðsins, Brookelynn Entz, yrði ekki áfram hjá félaginu. Entz var hjá HK í tvö ár eftir að hafa fyrst komið til Íslands árið 2022 og spilað með Val. Hún er fædd árið 1998 og reyndist HK heldur betur vel þau tímabil sem hún spilaði með liðinu. Fyrra tímabilið skoraði hún tíu mörk í átján leikjum og í sumar skoraði hún þrettán mörk í átján leikjum.
Grótta staðfesti í dag að Gabríel Hrannar Eyjólfsson væri búinn að kveðja félagið og væri búinn að semja við KR um að spila með liðinu á næsta tímabili. Ásamt því að spila með KR mun hann koma að þjálfun yngri flokka í Vesturbænum. Gabríel er enn einn leikmaðurinn sem Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótbotlamála hjá KR, þjálfaði á sínum tíma í 2. flokki KR.