Leverkusen fær Mukiele frá PSG (Staðfest)
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru búnir að tryggja sér bakvörðinn öfluga Nordi Mukiele á lánssamningi sem gildir út leiktímabilið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24407 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru búnir að tryggja sér bakvörðinn öfluga Nordi Mukiele á lánssamningi sem gildir út leiktímabilið.
Ítalska stórveldið Juventus hefur gengið frá félagaskiptum fyrir Teun Koopmeiners sem kemur til félagsins úr röðum Atalanta.
OGC Nice er búið að staðfesta félagaskipti Youssoufa Moukoko til félagsins frá Borussia Dortmund.
Fiorentina hefur fengið franska varnartengiliðinn Yacine Adli á láni frá AC Milan, með möguleika á kaupum eftir tímabilið. Þessi 24 ára leikmaður verður á láni út tímabilið og gerir svo fjögurra ára samning við Fiorentina ef félagið nýtir sér ákvæðið.
Brentford hefur keypt brasilíska vængmanninn Gustavo Nunes frá Gremio fyrir um tíu milljónir punda. Ungstirnið hefur skrifað undir sex ára samning, með möguleika á tveimur árum til viðbótar. Nunes er átján ára og segir Thomas Frank stjóri Brentford að það hafi þurft harða baráttu við önnur áhugasöm félög til að landa honum.
Skotlandsmeistarar Celtic hafa fengið vinstri bakvörðinn Alex Valle lánaðan frá Barcelona út tímabilið. Valle er tvítugur og kom í gegnum La Masia akademíuna frægu. Hann hefur verið ónotaður varamaður í fyrstu tveimur leikjum Börsunga í La Liga. Hann lék á láni hjá Levante í spænsku B-deildinni á síðasta tímabili.
Nýliðar Ipswich í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið vængmanninn Chiedozie Ogbene frá Luton. Írski landsliðsmaðurinn er keyptur á átta milljónir punda og skrifaði undir fjögurra ára samning á Portman Road.
Burnley í Championship-deildinni hefur fengið miðjumanninn Hannibal Mejbri frá Manchester United. Þessi 21 árs landsliðsmaður Túnis lék á lánssamningi hjá Sevilla á síðasta tímabili.
Blackburn Rovers, lið Arnórs Sigurðssonar, hefur fengið velski vinstri bakvörðinn Owen Beck á láni frá Liverpool.
Englendingurinn Jonjo Shelvey verður áfram í Tyrklandi en hann hefur samið við Eyupspor í B-deildinni.
Argentínski markvörðurinn Juan Musso er kominn til Atlético Madríd frá Evrópudeildarmeisturum Atalanta.
Ítalski miðvörðurinn Angelo Ogbonna hefur fundið sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið West Ham í sumar, en hann hefur samið við enska B-deildarfélagið Watford.
Ítalska félagið Roma hefur staðfest kaupin á sádi-arabíska hægri bakverðinum Saud Abdulhamid en hann kemur frá deildarmeisturum Al Hilal.
Liverpool staðfesti í kvöld kaupin á georgíska landsliðsmarkverðinum Giorgi Mamardashvili en hann kemur til félagsins frá spænska félaginu Valencia. Markvörðurinn verður áfram hjá Valencia á láni út leiktíðina.
Fílabeinsstrendingurinn Hamed Traore er mættur til franska félagsins Auxerre á láni frá Bournemouth.
Tyrkneski landsliðsmaðurinn Ferdi Kadioglu var í kvöld kynntur hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Brighton en hann kemur til félagsins frá Fenerbahce.
Sádi-arabíska félagið Al Hilal hefur staðfest kaupin á portúgalska bakverðinum Joao Cancelo en hann kemur frá Manchester City fyrir 20 milljónir punda.
Arsenal hefur fengið spænska miðjumanninn Mikel Merino frá Real Sociedad á upphæð sem gæti náð 31,6 milljón punda. Þessi 28 ára leikmaður gerði fjögurra ára samning en hann spilaði í öllum sjö leikjum Spánar á EM í sumar og skoraði sigurmarkið í framlengingu gegn Þýskalandi í 8-liða úrslitum. <i>„Mikel er leikmaður sem kemur með mikil gæði, reynslu og fjölhæfni. Hann styrkir lið okkar og er sigurvegari eins og sýndi sig þegar hann vann EM með Spáni í sumar,"</i> segir Mikel Arteta stjóri Arsenal.
Kantmaðurinn Francisco Conceicao er genginn í raðir ítalska stórliðsins Juventus. Hann kemur til Juventus á láni frá Porto út tímabilið.
Erica Alicia Cunningham fékk í gær leikheimild með Tindastóli og mun spila með liðinu út tímabilið. Cunningham er varnarmaður, 31 árs og fædd í San Francisco í Bandaríkjunum. Hún hóf atvinnumannaferilinn í Sviss, lék næst með Norrköping og var svo á mála hjá Blacbkurn í Englandi áður enhún hélt til Sádi-Arabíu í fyrra þar sem hún lék með Eastern Flames FC.