Fotbolti.net
27.08.24 - 19:07
Brynjar Ingi Erluson

Bournemouth sendir Traore til Frakklands (Staðfest)

Hamed Traore er farinn til Frakklands

Hamed Traore er farinn til Frakklands

Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsstrendingurinn Hamed Traore er mættur til franska félagsins Auxerre á láni frá Bournemouth.
Þessi 24 ára gamli sóknarsinnaði leikmaður kom til Bournemouth frá Sassuolo á síðasta ári en spilaði aðeins þrjá deildarleiki með enska félaginu.

Bournemouth samþykkti því að lána hann út fyrir lok gluggans en hann er kominn til Auxerre, sem er nýliði í frönsku úrvalsdeildinni.

Frönsku miðlarnir segja kaupákvæði í lánssamningnum, en það veltur allt á frammistöðu liðsins á tímabilinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.