Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   mið 28. ágúst 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Markvörður Atalanta til Atlético (Staðfest)
Mynd: Atlético Madríd
Argentínski markvörðurinn Juan Musso er kominn til Atlético Madríd frá Evrópudeildarmeisturum Atalanta.

Þessi þrítugi markvörður kemur til Atlético á láni út tímabilið en hann verður Jan Oblak til halds og trausts á bekknum.

Musso hefur spilað með Atalanta síðustu þrjú árin og var fastamarkvörður á fyrstu tveimur tímabilum sínum áður en hann missti sætið til Marco Carnesecchi.

Rui Patricio kom til félagsins í sumar og var því ekkert pláss fyrir Musso sem hefur nú samið við Atlético.

Musso á 2 A-landsleiki með Argentínu.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner