Leverkusen fær Mukiele frá PSG (Staðfest)

Mynd: PSG

Mynd: EPA

Mynd: PSG
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru búnir að tryggja sér bakvörðinn öfluga Nordi Mukiele á lánssamningi sem gildir út leiktímabilið.
Mukiele er 26 ára gamall og kemur á lánssamningi frá Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain, þar sem hann hefur tekið þátt í 45 keppnisleikjum á tveimur árum.
Mukiele er franskur en þekkir mjög vel til þýska boltans eftir að hafa verið hjá RB Leipzig í fjögur ár og gert flotta hluti.
Það fylgir enginn kaupmöguleiki með lánssamningi Mukiele, sem er með þrjú ár eftir af samningi við PSG.

He's here and he's magnifique. ???????????? pic.twitter.com/pzlbAXQ4gO
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) August 28, 2024

Mynd: EPA