Fotbolti.net
28.08.24 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ogbonna semur við Watford (Staðfest)

Ogbonna semur við Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski miðvörðurinn Angelo Ogbonna hefur fundið sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið West Ham í sumar, en hann hefur samið við enska B-deildarfélagið Watford.
Ogbonna er 36 ára gamall og er að fara spila fyrir fimmta félagið á ferlinum.

Hann spilaði með Torino og Juventus á Ítalíu en skipti yfir til West Ham árið 2015.

Ítalinn var ekki í stóru hlutverki síðustu ár sín hjá West Ham en spilaði þó tíu leiki í Sambandsdeild Evrópu er liðið varð meistari í fyrsta sinn.

Eftir þetta tímabil rann samningur hans út og ákvað hann að leita annað, en hann hefur nú gengið frá samningum við Watford, sem spilar í B-deildinni á Englandi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.