Fotbolti.net
28.08.24 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Jonjo Shelvey í tyrknesku B-deildina (Staðfest)

Jonjo Shelvey í tyrknesku B-deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Englendingurinn Jonjo Shelvey verður áfram í Tyrklandi en hann hefur samið við Eyupspor í B-deildinni.
Shelvey er 32 ára gamall og var talinn með efnilegustu leikmönnum Englands fyrir fjórtán árum.

Hann kom til Liverpool frá Charlton og var spáð frægð og frama, en náði aldrei þeim hæðum sem honum var spáð.

Miðjumaðurinn spilaði einnig með Swansea og Newcastle ásamt stuttri dvöl hjá Nottingham Forest áður en hann hélt til tyrkneska úrvalsdeildarfélagsins Cayuk Rizespor á síðustu leiktíð.

Eftir tímabilið yfirgaf hann félagið og er hann nú búinn að semja við Eyupspor í B-deildinni.

Arda Turan, fyrrum leikmaður Barcelona og tyrkneska landsliðsins, er þjálfari liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.