Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24428 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR06.02.2024, 14:44

Slóvenskur kantmaður í Grindavík (Staðfest)

Slóvenski kantmaðurinn Matevz Turkus er genginn í raðir Grindavíkur og mun spila fyrir félagið í sumar. Turkus er 24 ára Slóveni sem var fyrirliði NK Fuzinar á síðasta tímabili. Hann er hægri kantmaður sem á leiki fyrir unglingalandslið Slóveníu. Á ferli sínum hefur hann einnig spilað í Austurríki. Hann varð slóvenskur bikarmeistari árið 2018 með uppeldisfélaginu Olimpija Ljubljana.

FRÉTTIR06.02.2024, 06:00

Markús Máni í Víði (Staðfest)

Víðir í Garði hefur styrkt leikmannahóp sinn fyrir komandi átök en Markús Máni Jónsson er kominn til félagsins frá Árbæ.

FRÉTTIR05.02.2024, 17:15

Ivo Braz í portúgölsku C-deildina (Staðfest)

Ivo Braz, sem kom til Íslands fyrir síðasta tímabil og lék með Ægi og Aftureldingu, hefur fengið félagaskipti til AD Fafe í Portúgal. Braz er portúgalskur sóknarsinnaður miðjumaður sem átti mjög gott tímabil í Lengjudeildinni í fyrra.

FRÉTTIR05.02.2024, 17:00

Steinþór Freyr í Völsung (Staðfest)

Steinþór Freyr Þorsteinsson er búinn að skrifa undir eins árs samning við Völsung og mun leika með liðinu í 2. deild. Hann kemur til félagsins frá KA. Hann er 38 ára gamall og hefur leikið með Völsungi á undirbúningstímabilinu.

FRÉTTIR05.02.2024, 12:36

Ariela Lewis og Sigrún Guðmunds í Aftureldingu (Staðfest)

Afturelding tilkynnti á dögunum um komu tveggja leikmanna til félagsins og um framlengingu á einum samningi. Afturelding er að undrbúa sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Ariela Lewis er komin til félagsins og leikur með liðinu í sumar. Hún kemur frá Gróttu þar sem hún skoraði 29 mörk í 37 leikjum síðustu tvö tímabil. Þar áður lék Ariela með háskóla liði Alabama State í Bandaríkjunum og að loknum háskóla hélt Ariela frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar þar sem hún lék tvö tímabil.

FRÉTTIR05.02.2024, 11:34

Króatískur miðjumaður í Grindavík (Staðfest)

Josip Krznaric er kominn með leikheimild með Lengjudeildarliði Grindavíkur. Krznaric er 31 árs króatískur miðjumaður sem kemur á frjálsri sölu en hann spilaði síðast með NK Krka. Hann hefur spilað í heimalandinu, Slóvakíu, Eistlandi, Austurríki og Slóveníu á sínum ferli. Hann kemur til með að fylla skarð Marko Vardic sem gekk í raðir ÍA.

FRÉTTIR05.02.2024, 11:24

Spænskur varnartengiliður í ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur fengið til sín spænskan miðjumann, Vicente Valor, og er hann kominn með leikheimild með félaginu. Hann gerði tveggja ára samning. ÍBV féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabil og eru Hermann Hreiðarsson og hans menn að búa sig undir tímabil í Lengjudeildinni þar sem stefnan er væntanlega sett á að komast beint upp aftur.

FRÉTTIR03.02.2024, 18:39

Vestri fær fyrirliðann frá Fredericia (Staðfest)

Vestri er búinn að krækja sér í nýjan miðvörð sem á að fylla í skarðið sem Gustav Kjeldsen skilur eftir. Gustav sleit hásin og verður því frá keppni í sumar en Jeppe Spliid Gertsen mun taka stöðu hans í hjarta varnarinnar hjá Vestra.

FRÉTTIR03.02.2024, 07:30

Lucas Bergvall til Tottenham (Staðfest)

Sænski landsliðsmaðurinn Lucas Bergvall er genginn til liðs við Tottenham Hotspur frá Djurgården en þetta tilkynnti Lundúnarfélagið seint í gærkvöldi.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.