Marouane Fellaini leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Marouane Fellaini

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Marouane Fellaini

Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, fyrrum leikmaður Everton og Manchester United, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril en þetta tilkynnir hann á Instagram.
Belgíski miðjumaðurinn er 36 ára gamall og spilaði alls með fjórum félögum á ferlinum.
Hann fór hann hjá Standard Liege í heimalandinu aður en David Moyes fékk hann til Everton árið 2008.
Moyes tók Fellaini með sér til Manchester United er hann tók við liðinu af Sir Alex Ferguson og þar spilaði Fellaini í sex ár, þar sem hann vann meðal annars Evrópudeildina, enska bikarinn og deildabikarinn.
Fellaini var í uppáhaldi margra stuðningsmanna United og einhverskonar költ-hetja.
Árið 2019 yfirgaf hann United eftir að hafa spilað 177 leiki í öllum keppnum og samdi við Shandong Taishan í Kína. Þar vann hann bikarinn þrisvar og deildina einu sinni áður en hann yfirgaf félagið á síðasta ári.
Fellaini spilaði 87 A-landsleiki fyrir Belgíu og skoraði 18 mörk, en hann náði mögnuðum árangri með liðinu á HM 2018 er þjóðin fékk bronsið.
„Ég hef spilað fyrir framan bestu stuðningsmenn heims og vil ég nýta þetta augnablik til að þakka þeim fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum ferilinn. Hvatning ykkar og ástríða hefur fært mér botnlausan brunn af innblæstri,“ sagði Fellaini á Instagram