Spænskur varnartengiliður í ÍBV (Staðfest)

Vicente Valor gerði tveggja ára samning.

Mynd: Skjáskot/Youtube

ÍBV hefur fengið til sín spænskan miðjumann, Vicente Valor, og er hann kominn með leikheimild með félaginu. Hann gerði tveggja ára samning.
ÍBV féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabil og eru Hermann Hreiðarsson og hans menn að búa sig undir tímabil í Lengjudeildinni þar sem stefnan er væntanlega sett á að komast beint upp aftur.

TENGT EFNI
Komnir/farnir og samningslausir í Lengjudeildinni
Valor er 26 ára varnartengiliður sem lék í neðri deildum Spánar en hefur undanfarin ár leikið í bandaríska háskólaboltanum. Hann lék fyrir Franklin Pierce Ravens.
„Valor sem er 26 ára gamall miðjumaður hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðasta árið en þar hefur hann leikið með Bolabítunum frá Bryant háskólanum. Á síðustu mánuðum hefur hann byrjað alla leiki liðsins nema einn og komið að þó nokkrum mörkum bæði með stoðsendingum og góðum skotum. Knattspyrnudeild ÍBV býður Valor velkominn til liðsins og í leiðinni til Vestmannaeyja," segir á heimasíðu ÍBV.
Valor birti mynd af sér í desember á Instagram í Sky Lagoon hér á landi.