Vestri fær fyrirliðann frá Fredericia (Staðfest)

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri
Vestri er búinn að krækja sér í nýjan miðvörð sem á að fylla í skarðið sem Gustav Kjeldsen skilur eftir. Gustav sleit hásin og verður því frá keppni í sumar en Jeppe Spliid Gertsen mun taka stöðu hans í hjarta varnarinnar hjá Vestra.
Jeppe er 26 ára gamall og kemur hann úr röðum FC Fredericia sem leikur í næstefstu deild danska boltans. Jeppe spilaði 69 leiki fyrir Fredericia og þá flesta sem fyrirliði.
Jeppe er uppalinn hjá Silkeborg og spilaði hann 36 leiki fyrir félagið áður en hann skipti til Fredericia. Jeppe á 16 leiki að baki í efstu deild danska boltans og kemur því með frábæra reynslu inn í liðið hjá Vestra.
Það verður áhugavert að fylgjast með Jeppe reyna fyrir sér í efstu deild á Íslandi með nýliðum Vestra sem ætla að gera allt í sínu valdi til að halda sæti sínu í deildinni.
Jeppe þarf að fylla í stórt skarð enda var Gustav besti leikmaður Vestra í Lengjudeildinni í fyrra.