Fotbolti.net
03.02.24 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Lucas Bergvall til Tottenham (Staðfest)

Lucas Bergvall til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Tottenham

Sænski landsliðsmaðurinn Lucas Bergvall er genginn til liðs við Tottenham Hotspur frá Djurgården en þetta tilkynnti Lundúnarfélagið seint í gærkvöldi.
Bergvall, sem er 18 ára gamall en tókst samt að spila 28 leiki í öllum keppnum með sænska liðinu á síðustu leiktíð þar sem hann gerði þrjú mörk og lagði upp eitt.

Svíinn var nálægt því að ganga í raðir Barcelona á Spáni. Barcelona fékk 8,5 milljóna punda tilboð samþykkt og hafði leikmaðurinn skoðað aðstæður á Spáni, en valdi frekar að fara til Tottenham.

Bergvall fór í læknisskoðun hjá Tottenham í gær og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning. Kaupverðið er um 8,5 milljónir punda.

„Þetta er ótrúlega gott félag með frábæran stjóra. Þetta er ungt og hungrað lið sem spilar góðan fótbolta,“ sagði Bergvall við undirskrift, en hann fagnaði einmitt 18 ára afmælisdegi sínum í gær.

Miðjumaðurinn knái spilaði sinn fyrsta A-landsleik í síðasta mánuði í 2-1 sigri á Eistlandi.

Bergvall mun spila áfram með Djurgården fram að sumri áður en hann gengur formlega í raðir Tottenham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.