Króatískur miðjumaður í Grindavík (Staðfest)

Josip Krznaric.

Mynd: Getty Images

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Josip Krznaric.

Mynd: Getty Images

Josip Krznaric er kominn með leikheimild með Lengjudeildarliði Grindavíkur.
Krznaric er 31 árs króatískur miðjumaður sem kemur á frjálsri sölu en hann spilaði síðast með NK Krka. Hann hefur spilað í heimalandinu, Slóvakíu, Eistlandi, Austurríki og Slóveníu á sínum ferli.
Hann kemur til með að fylla skarð Marko Vardic sem gekk í raðir ÍA.

TENGT EFNI
Komnir/farnir og samningslausir í Lengjudeildinni
Þá bíður Grindavík eftir leikheimildum fyrir slóvenska kantmanninum Matevz Turkus og miðjumanninum Eric Vales frá Andorra.
Leikmennirnir þrír eru allir hjá SC3 Football Management umboðsskrifstofunni. Það er sama umboðsskrifstofa og er með Vardic og Edi Horvat sem léku með Grindavík í fyrra.
Brynjar Björn Gunnarsson er áfram þjálfari Grindavíkur en liðið hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.